laugardagur, apríl 29

Comeback

Merkilegt hvað maður þarf að finna sér eitthvað annað að gera á sama tíma og maður á að vera í próflestri. Held að sálin fari á annað stig við stressið sem fylgir prófum, svona stig þar sem maður verður bara að setjast niður og skrifa eitthvað um ekki neitt...... Jafnvel ná sér í samúð blogglesara um hvað maður á ótrúlega bágt, að þurfa að hanga inni á sólríkum degi og lesa, lesa bækur í fyrsta skipti sem hafa ekki verið opnaðar áður, jafnvel ekki einu sinni keyptar. Á meðan maður hefur áhyggjur af prófum, mætir maður til vinnu með öllu alvarlegra stress oft á tíðum. Það er jú undir manni komið að landsmenn fái fréttir af því hvort að setuverkfalli starfsfólks hjúkrunarheimilanna sé lokið. Fór annars til Spánar í nótt og heimsótti elskulegu Bryndísi, hún átti of mikið af eldhúsdrasli. Bryndís elskan, ef þú lest þá er mín alvarlega að spá í að koma og sækja þig heim.
|

þriðjudagur, apríl 25

Kónguló

Kónguló skreið upp á andlitið á mér í nótt, hún var bleik og loðin, frekar stór. Ég bað fólk í kringum mig að taka hana af mér því hún settist að á auganu á mér. Enginn þorði og ég sá ekki neitt. Ákvað að grípa bara um augað og ná í hana sjálf. Fann allt í einu hvernig hún stakk einhverju á bólakaf í augað og skildi þykkan þráð eftir. Svona svipaðan og notaður er til að sauma saman sár. Það var ótrúlega vont að draga hann út úr auganu. Eftir stóð ég með bólgið auga. Ég náði dýrinu og kramdi það í mauk, bleikt mauk. Í morgun gat ég ekki staðist að kíkja í ráðiningabókina. En hún sagði mér: "ef að fólk dreymir kónguló ættu menn að hafa í huga að þótt eitthvað hafi nýlega mistekist skulu þeir ekki missa móðinn því þolinmæði þrautir vinnur allar. Skríði kóngulær yfir menn í draumi berast þeim miklir peningar innan tíðar. Drepi menn eina kóngulóna verða þeir ánægðir í framtíðinni." Það hafið þið það! Innan tóm færlsa frá mér um kóngulóardraum svona í tilefni þess að ég er að læra fyrir próf og þurfti aðeins að líta upp úr bókinni.
|

sunnudagur, apríl 23

Vel heppnuð Bandaríkjaferð

jæja - smá færsla vegna gríðarlegra anna. Komum heim frá BNA í gærmorgun, ferðin grand í gegn og eintóm gleði. Úrvalsfólk sem við hittum að sjálfsögðu og gaman að sjá hvað Erla Ósk vinkona býr vel i Minneapolis. Annars skellti ég inn myndum úr ferðinni - ekki komið nema brot samt - hef engan tíma sökum vinnu og lærdóms þessa dagana. Hægt að sja myndirnar eftir skýstrókinn sem gekk yfir Iowa City kvöldið áður en við komum þangað - lukka? já jafnvel. Framundan er vinna, próf, próf, próf, Eurovision partý hjá Kollz og kalli, flutningur í nýja íbúð og svo vinna, vinna og aftur vinna. Stay tuned folks!

myndirnar eru á þessari slóð: BNA
hún er læst vegna geðsjúklinga sem vilja mér illt þannig að endilega sendið mér mail eða línu yfir msn
|