..........
"Munurinn á blaðaskrifum og bókmenntum er sá, að blaðaskrif eru ólesandi og bókmenntir eru ekki lesnar." - Oscar Wilde .......En blogg?....Yes?
sunnudagur, febrúar 19
miðvikudagur, febrúar 1
Silvíu Nótt í Evróvísjón!
Það fær mann til þess að setjast aftur niður í nokkrar mínútur og blogga þegar maður fréttir að til standi að banna Silvíu Nótt að taka þátt í undankeppninni á laugardaginn. Ég er kannski ekki hlutlaus í þessu máli þar sem mér finnst hún snillingur og lóðir við að mér finnist fólk sem ekki er sama sinnis eitthvað á mis. Lagið lak á netið fyrir tilstuðlan annarra en þeirra sem að laginu stóðu. Þau eru búin að leggja blóð, svita og tár í þetta og því ekki séns í stiknandi helvíti að því sé kastað á glæ svona. Of mikið er í húfi. Ég heyrði þetta lag og verð að segja að það er algjör snilld enda ekki við öðru að búast. Þessi keppni er búin að vera eins ár eftir ár, súrir söngvarar með leiðinlega texta hvað eftir annað og engar nýjungar. Nú er VON Íslendingar. Ekki nóg með að Ágústa Eva í gervi Silvíu Nætur geti sungið, hún er með réttu múnderinguna og rétta TEXTANN. Ef hún ekki kemst áfram í þessu þá ætla ég ekki að fylgjast meira með þessari keppni því mér þykja þau lög sem komin eru einfaldlega leiðinleg. Go Silvía. |


