..........
"Munurinn á blaðaskrifum og bókmenntum er sá, að blaðaskrif eru ólesandi og bókmenntir eru ekki lesnar." - Oscar Wilde .......En blogg?....Yes?
fimmtudagur, janúar 19
fimmtudagur, janúar 12
miðvikudagur, janúar 11
Skapháratíska
Umræðan um hvernig ber að hafa skaphárin hefur náð í fréttir NFS. Í matarboði síðustu helgi hjá Bríeti ræddum við stjórnmálafræðiskvisur mjög málefnanlega, að sjálfsögðu, um þessa tísku. Margir vilja þó ganga svo langt að líkja þessu við umskurð kvenna. Patrý Hanz fór a kostum með tveimur stúlkum sem stundum roðnuðu hreinlega yfir hreinskilni í kauða á fréttavaktinni á NFS í gær. Persóulega rakaði hann á sér bringuna. Eins persónulegt og það verður. En ég er forvitin um það hvað fólki finnst - er brasilískt vax málið? Allt af? rönd, þríhyrningur eða bara "frumskógur" eins og Hanz orðaði það?
Hver er megin ástæðan fyrir þvi að þetta er gert? Til að líða vel? Þóknast einhverjum öðrum?
Er virkilega gaman að eiga svona nærbuxur með hárin út á læri? |
mánudagur, janúar 9
Nyjar myndir loksins!
Jæja, loksins druslaðist ég til að taka upp myndavélina. Var dugleg í þrettándagleði Vöku en fékk smá hjálp hjá Árna. Svo eru nokkrar myndir úr vinkonuhittingum. www.fotki.com/kristib. Annars langar mig að sjá Hostel í bíó - fékk sms frá Eyrúnu í hléi: Aldrei, aldrei, ALDREI fara á The Hostel! Mér er dauðans alvara! Ég skelf, er náföl og það illt í maganum að ég gæti ælt. Þetta er ekki viðvörun heldur skipun!
.....okei, hver er til í að koma með?? |
Fuglamisþyrming vegna fuglaflensu
Uppgjör ársins 2005 bíður enn, var komin með nokkuð nettan pistil í gær en allt datt út. Í staðinn langar mig að lýsa vonbrigðum mínum á illri meðferð fugla sem drepnir eru vegna fuglaflensunnar sem loksins er komin til Austur-Evrópu í öllu sínu veldi. Það tekur ekki nokkra stund að snúa þessi grey úr háls en í staðinn er þeim troðið í poka lifandi og hent á bálið. Óþolandi svona meðferð. Svo óþolandi að ég ætla ekki að skrifa meira. |
sunnudagur, janúar 1
Gleðilegt ár!
Vona að allir hafi skemmt sér vel í gær. Mín er hins vegar búin að vera lasin og heilsulaus og gerði því ekkert í gærkveldi. Slepp þó við þynnku en fæ háslbólgu í staðinn. Mun gera upp árið 2005 í næstu færslu þegar heilsan verður betri og mun þá m.a viðburður ársins verða valinn ásamt full af öðru rugli. Fannst mjög leiðinlegt að komast ekki í borgina í gær því þangað var ferðinni heitið áður en heilsa stúlku yfirgaf hana. |



