laugardagur, desember 24

Gleðileg jól

Óska vinum og vandamönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Vonadi verða jólin ykkur ánægjuleg og áfallalaus.

Ég man þau jólin mild og góð
er mjallhvít jörð í ljóma stóð
stöfuð stjörnum bláum
frá himni háum
í fjarska kirkjuklukkna hljóð
Ég man þau jól hinn milda frið
á mínum jólakortum bið
að ævinlega eignist þið, eignist þið
heiða daga helgan jóla frið

Ég man þau jólin mild og góð
er mjallhvít jörð í ljóma stóð
stöfuð stjörnum bláum frá
himni háum í fjarska
kirkjuklukkna hljóð

Ég man þau jól hinn milda frið
á mínum jólakortum bið
að ævinlega eignist þið, eignist þið
heiða daga helgan jóla frið
|

þriðjudagur, desember 20

Quiz your friend

Já við erum afmarkaður hópur sem er kominn með æði fyrir þessu "Quiz your friend" - þetta er ferlega skemmtileg og ótrúlegt hverju fólk finnur upp á í prófatíð.
http://www.quizyourfriends.com/yourquiz.php?quizname=051220195729-455608
|

mánudagur, desember 19

Mistök í prófi

Þegar ég var komin bls 66 í fréttablaðinu í dag rak ég augun í fyrirsögina "Bubbi kominn aftur á Rás 2". Sem áhugamanneskja um þá tónlist staldraði ég við og las. Nett sjokk greip um sig þegar ég las "....ég var settur út í kuldann eftir ummæli mín um Hannes Hólmstein....." Kræsturinn hugsaði ég. Varð svo "sniðug" í fyrra prófi mínu hjá Hannesi Hólmsteini að vitna í Þorláksmessutónleika Bubba þegar hann kom með prófdæmið um leikhússtjórnann sem var ánægður með að það væri uppselt næstu þrjá mánuði á sýningar hans - máli mínu til stuðnings vitnaði ég í Bubba vegna þess að hann hafði hækkað aðgangseyrinn í ár um 1000 kr síðan í fyrra vegna eftirspurnar. Jafnvel að það hafi ekki verið sterkur leikur í ljósi ummæla Bubba um Hannes. En þar sem að Hannes hefur ekki farið varlega í sínum ummælum um ákveðinn mann þá hlýtur hann að fyrirgefa mér þetta dæmi. Nú ef ég fell í þessu prófi þá veit ég (kannski) af hverju.
|

sunnudagur, desember 18

finasta helgi


Helgin er á enda og má vel segja að þessi sé með þeim betri sem af er árinu. Hún hófst á prófi hjá Hannesi (já ég tel föstudaginn bara með). Það gekk best, eftir það fór ég með AlAdda í ríkið og Hagkaup til að sækja mintulauf fyrir kókteilinn - megið giska hvað hann heitir..... Eftir sturtu, naglamanikjúr og einn kaldan Leffe var farið í betri gallann og Ásdís "pikkaði" mig upp. Fórum til Munda þar sem Erdinger hveitibjórinn fékk að njóta sín í gömlu mjólkurbikarglasi. Eftir gott spjall en frekar slaka drykkju var Arnar Þór svo næs að skutla okkur alla leið niður í miðbæ - eða þessa 400 metra sem við nenntum ekki að labba. Tónleikarnir á NASA voru skemmtilegir en er ennþá pínu svekkt út í Trabant að hafa ekki tekið "Arms". Tóku það heldur ekki í eyjum og mér fannst ég eiga inni hjá þeim. Í staðinn fékk ég kampavínsgusu í andlitið og geri aðrir betur. í gær (Laugardag) var mintukókteilinn blandaður og Eyrún og Kolla nágrannar fengu að smakka. Síðan var förinni heitið í partý úti á nesi en í raun var ég boðflenna í því partýi - þetta var vinkonuhópurinn þeirra Eyrúnar og Kollu en af því að ég er svo skemmtileg að þá báðu þær mig endilega að koma með svo að partýið myndi örugglega ekki klikka. Þar tók við meiri drykkja, jarðaberja "beilís" , fishermans friend skot og gin og greip. Eyrún fór hamförum með poloroid myndavélina og ég stóð mig ágætlega í því að gúffa í mig snakkið, enda hafði hagen dazs ís verið kvöldmaturinn. Að sjálfsögðu var farið í miðbæinn og varð Kofinn fyrir valinu. Þar var dansað af sér rassgatið fram á rauða og því næst farið í leigubílaröðina þar sem óþolandi fólk reyndi að troða sér fram fyrir Kristínu. Gekk auðvitað ekki. Í kvöld er það svo fimbulfamb með stúlkunum og þykir það snilldarbragð til þess að ljúka góðri helgi. Við Sigga Dögg ætlum svo að vera duglegar og vakna "snemma" , fara á bókhlöðuna og ljúka þeim ritgerðum sem eftir eru.
|

fimmtudagur, desember 15

Trabant - Hjalmar - Mugison

já, í tilefni þess að ég er búin í prófum á morgun þá ætla ég á þessa tónleika á NASA. vá hvað það verður gaman.
|

laugardagur, desember 10

Stelpujólagjafir

Einhvern tímann var ég skömmuð fyrir að láta ekki óskalistann minn á síðuna.......eftir miklar og erfiðar pælingar hef ég komist að niðurstöðu og hér eru topp átta á jólagjafalistanum - ........þetta er eingöngu gert til þess að létta þeim lífið sem hafa verið í vandræðum so far - held að ég sé samt að fá bókina :) Eftir að hafa verið stoppuð á Laugarveginum af starfsfólki Vikunnar til þess að gera mér lífið leitt og biðja mig um að segja þeim sem lesa vikuritið hvað mig langaði í jólagjöf fór ég að leggja hausinn í bleyti. Eina sem ég gat stunið upp þegar þau spurðu mig var "bók, eitthvað praktískt" og þurfti um leið að útskýra hvað praktískt væri. Niðurstaðan er hér:
* Bókin sem gerir mann klárari en maður er.......
* Önnur dollan er að klárast af BESTA body lotioni í heimi frá Betu Arden - green tea/honey drops
* Sólarpúðrið úr Terracotta-línunni frá Guerlain er líka alveg að verða búið
* Egypsk sængurverasett er möst að eiga
Guess what? maður á aldrei nóg af handtöskum
* ljúfir tónar A & the Johnsons
* Nýja trivial spilið
* Nýja best of diskinn með snillingi Johnny Cash
|

Lag dagsins

Hope There Is Someone með Anthony & The Johnsons

Hope there's someone
Who'll take care of me
When I die, will I go

Hope there's someone
Who'll set my heart free
Nice to hold when I'm tired

There's a ghost on the horizon
When I go to bed
How can I fall asleep at night
How will I rest my head

Oh I'm scared of the middle place
Between light and nowhere
I don't want to be the one
Left in there, left in there

There's a man on the horizon
Wish that I'd go to bed
If I fall to his feet tonight
Will allow rest my head

So here's hoping I will not drown
Or paralyze in light
And godsend I don't want to go
To the seal's watershed

Hope there's someone
Who'll take care of me
When I die, Will I go

Hope there's someone
Who'll set my heart free
Nice to hold when I'm tired


- kauptu diskinn eða reddaðu þessu með einhverjum öðrum hætti
|

föstudagur, desember 9

Hver vill?


Katie Melua verður víst í Höllinni þanng 31.mars næstkomandi. Langar að fara því hún er nokkuð góð - reyndar möst að vera í stúku. Einhver?

Annars er eitt próf búið og þrjú eftir - þangað til borða ég mandarínur, piparkökur og drekk jólaöl.........Hlakka of mikið til að vera búin í þessum prófum því það er OF mikið framundan.....bjór, glögg, ball, jól, matur og flugeldar.
|

miðvikudagur, desember 7

...enn um vændi

Hlustaði á hluta viðtals við Ágúst Ólaf og Ástu Möller í Bítinu í morgun. Til umræðu var vændisfrumvarp sem fór mikinn hér fyrir rúmu ári síðan og ágætir feministar misstu sig hreinlega yfir. Er hægt að skrifa undir frumvarp sem refsar einungis öðrum aðilanum þegar báðir eru að fremja "lögbrot"? Ég geri mér fulla grein fyrir því að margar eru nauðugar í þessu en er ekki hægt að finna sér margt annað "smekklegra" að gera hér á Íslandi? Þess má geta að vændi er BARA bannað ef það er til framfærslu. Hreinlega ekki klár á því hversu margar stunda þetta hérlendis sér til yndisauka en sennilega má finna einhverjar........hvort sem þær fá pening eða eitthvað annað.....og sennilega einhverjar sem eru í þessu nauðugar, sem er miður. Nefndin sem fjallar um málið er klofin í afstöðu sinni og því spennandi að fylgjast með gangi mála. Ég nenni í raun ekki að skrifa um þetta vændismál meira þar sem ég fékk nánast upp í kok af þessari umræðu síðast og fannst mér oft mjög ómálefnanlegar umræður spretta upp sem gerðu þreytta, þreyttari. Ég styð ekki vændi en finnst þessi löggjöf gefa frekar falska glansmynd af því hvernig málin muni þróast verði hún að veruleika. En hvað veit maður......jafnvel að þetta blessist allt og allir verði sáttir, "Miðstéttamennirnir" sem skv Ástu Möller stunda þetta - hætta að kaupa sér þjónustuna vegna hættu við sekt ef frumvarpið verður að veruleika......... En hvað með auðmennina? Getur ekki verið að þeir stundi þetta líka sér til yndisauka? .......er ekki skíttin sekt bara dropi í hafði fyrir þá?
|

laugardagur, desember 3

fine sæturday

Átti fínt gærkvöld með góðu fólki á Hereford steikhúsi þegar gúffað var í sig af semi-góðu hlaðborði. Reykti þorskurinn var góður ef maður lenti á þunnri sneið. Of þykk var vökvakennd og ekki að gera sig. Öndin var eins og sápa á bragðið og pate-ið var of sterkt. Það sem ekki gat klikkað var gott kjöt að undanskildu nautaskósólanum og rauðvínssósunni sem var aðeins of þunn. Eftir Hereford og snilldar uppistand Guffa við borðendann fórum við á Póstbarinn, Rex og 22. Dagurinn í dag ber vott um netta þynnku en ginið fór engu að síður vel í stúlku. Dreif mig af stað í Odda og var komin rúmlega 18. Lét mig hafa það að borða ósómahamborgara úr 10-11 enda lítið úrval þar um helgar. Svo er nóg nammi málið og gott námsefni. Hver myndi ekki vilja skipta og lesa áhrif smáríkja á stofnanastrúktur Evrópusambandsins??
|

föstudagur, desember 2

Gular teyjur uppúr!

Ég má til með að deila gömlu sundlaugar-reglunum úr Grindavík með ykkur. Ég geri þetta bara af því að mig dreymir svo oft gömlu sundlaugina. Svo margar góðar minningar þaðan. Þegar maður sagðist vera fara í "leiksund" ekki "sundnámskeið". Það var toppurinn. Að fara í leiksund. Enginn sunkennari a la Pálmi á bakkanum að segja okkur að koma inn í klefa til að læra: beygja, kreppa, sundur, saman. Enda ískalt að sitja blaut á sundbol að læra undirstöðurnar í bringusundi. En nóg um það. Sundlaugin gamla stóð við grunnskólann, girt með háum dökkbrúnum spýtum og efst var auðvitað gaddavír til að koma í veg fyrir "trespassing" sem aldrei virkaði. Hún hefur verið svona 15x5 metrar. Tveir klefar voru í gangi og skiptust þeir á að vera karla og kvennaklefi vegna þess að annar var miklu, miklu stærri. Hinn var nefninlega staðsettur í viðbyggingu sem var byggð um leið og sundlaugin. Framan að var bara einn klefi sem var ætlaður míní-íþróttasalnum. Skil það ekki ennþá.
Vegna þess hve sundlaugin var lítil og vinsæl þurfti að setja einhverjar reglur til þess að skammta aðgengi enda gat verið mjög erfitt fyrir eldra fólkið sem vildi synda þegar allt var troðið af krakkaskara á daginn. Reglurnar finnst mér æðislegar og gæfi ég mikið fyrir að finna svona stað á Íslandi í dag með álíka reglur. Þegar maður kom í sund fékk maður teygju um ökklan. Ef maður kom snemma fékk maður gula teygju, um miðjan dag fékk maður rauða teygju og eftir 18 voru grænar teyjur og þær fékk maður aldrei því eftir 18 var krökkum bannað að vera í sundi, enda kom alltaf eldra fólkið þá til þess að synda. Ólína og Fanney hétu konurnar sem unnu alltaf í sundinu og áttu þær oft í basli með að koma krökkunum uppúr þegar þær komu út og hrópuðu "gulaaaaaaaar teyjuuuuuuuur uppúúúúr!!!" Þá tók maður til þess ráðs að spyrja alla þá sem voru með rauðar teyjur hvort þeir vildu ekki skipta, oft gekk það en þa´voru konurnar búnar að skrifa nafnið manns niður þegar maður kom og GUL TEYGJA. Virkaði sum sé ekki alltaf. Verð engu að síður að hrósa þeim sem fann upp á þessari sniðugu "gamaldags"reglu.

Þessar minningar eru mér svo ótrúlega kærar og algjör forréttindi að hafa alist upp í Grindavík. Reyndar held ég að sundlaugin hafi verið mér ótrúlega kær enda bjó ég hreinlega þar sem krakki. Tók mig bara 2 mín að labba þangað. Eftir að nýja,flotta sundlaugin með rennibrautinni kom hætti ég að fara í sund. ég var jú orðin 14 ára og fannst frekar hallærislegt að fara í "leiksund" enda allur sjarminn farinn eftir að búið var að tæma gömlu laugina og lá við að maður færi í þunglyndi þegar hún var síðar rifin. Sakna hennar ennþá svo mikið að hún birtist mér hvað eftir annað í draumi.
|

Saltstauturinn

Ef ég hef einhvern tímann hallast að því að reimt sé hjá mér þá er það vegna saltstautsins. Hann er alltaf uppi í skáp og í fjórða skiptið er ég að taka hann niður til notkunar og stillingin er röng. Það er hægt að stilla á þrenna vegu: mjög lítið salt, meira og svo gusa, sem ég nota ALDREI (hver þarf svo mikið salt?) Anýhú. Síðast í morgun stóð ég sjálfa mig að því að taka stautinn niður og þurfti ég enn og aftur að rétta við stilllinguna.Það er alltaf búið að stilla á "ausu". Ég vil samt bara trúa því að efnafræðilegar ástæður liggi að baki. Of mikill þrýstingur og of heitt inni í skápnum sem leiðir til þess að lokið færist ALLTAF í sömu átt að stóra gatinu. Getur ekki einhver staðfest þessa efnafræðikenningu mína??? Þá sef ég betur þið skiljið...........
|