miðvikudagur, nóvember 30

Uppskrift að eggjapúnsi


6 eggs
1 cup + 1 tablespoon sugar
1/2 teaspoon vanilla extract
1/4 teaspoon ground nutmeg
3/4 cup brandy
1/3 cup dark rum (Captain Morgan for best flavor, but Myers is OK)
2 cups whipping cream
2 cups milk
All liquids should be very cold. Refrigerate in advance.

Beat the eggs for 2 or 3 minutes with an electric mixer at medium speed until very frothy. Gradually beat in the sugar, vanilla and nutmeg. Turn the mixer off and stir in the cold brandy, rum, whipping cream and milk Chill before serving. Sprinkle individual servings with more nutmeg.

Makes about 2-1/2 quarts.

Nú er bara að kaupa inn og blanda! Möst yfir hátíðirnar (í BNA er hægt að kaupa þetta í fernum!! Erla Ósk....þú kannski kippir með þér fernu á leiðinni heim?)
* Blandaði sérstakt jólaeggjapúns og tók meðfylgjandi mynd *
|

laugardagur, nóvember 26

Mælimeðlög

Tvö lög sem ég mæli með í dag - þau eru bæði gömul og góð.

Fyrra lagið er Baba O´Riley með hljómsveitinni The Who - fáið verðlaun ef þið vitið úr hvaða þáttum þetta lag er. Jón Páll og Sigga Dögg mega ekki vera með.

Síðara lagið er jólalagið Christmas vacation úr samnefndri mynd. Frábært lag og frábær mynd. Must að horfa á Clark Wilhelm Griswold, Jr. fyrir hver einustu jól. Helst með pabba mínum.....hann hlær svo hátt.....gefur myndinni ennþá meira gildi.
|

Aumar varir og sárir fingur

Veit ekki með aðra, en þegar ég fer að verða óróleg vegna prófa sem framundan eru tekur sig upp sadómasó hegðun. Ég ét upp til agna á mér naglaböndin og bít svo hrikalega á mér varir og kinnar að mig hreinlega verkjar og svíður. Lausnin við því er að hætta í 5 eininga kúrs til að létta álagið. Virkar og sárin eru að gróa. Vil annars segja við þá sem eru ekki að fara í próf að ég öfunda þá ekki. Skemmtilegast í heimi er að vera í jólaprófum........fá svo spennufall þann 16.des og blanda eggjapúns a la Boggi.

- jú þetta er eggjapúns á myndinni....eða EGGNOG
|

föstudagur, nóvember 25

-

Í dag fékk ég tölvupóst með subjectinu: fyrirfram gefin prófspurning.

Annars mæli ég með því að fólk skoði tvo linka í dag:

1) www.bjorningi.is - til að átta sig á því hvað hægt er að gera fólk fallegt með tölvutækninni
2) www.endofworld.net - til að sjá hvað hægt er að vera fyndinn
|

mánudagur, nóvember 21

gilli gilli gill - back to gaggo

Já, elskan mín hún Erla Ósk í Bandaríkjunum kítlaði mig. Þar sem ég hef ekki tíma til að svara öllu og mikið af þessu veldur miklu hugarangri hjá mér þá hef ég ákveðið að svara þessu í skrefum og ætla að byrja á því skemmtilegasta:

7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
1. Sjálfsöryggi
2. Metnaður
3. Góður húmor
4. Fallegt bros
5. íþróttaiðkun
6. Heiðarleiki
7. Flottur fatastíll (nei, það er ekki shallow)

7 frægir karlmenn sem heilla mig: (P.s hér er eingöngu um að ræða útlitslega þáttinn - hef ekki orðið svo lánsöm að njóta neinnar samveru með þessum dúddum til að kynnast þeim persónulega....sad but true)
1. Michael Vartan
2. Eddie Cahill
3. Jesse Spencer
4. Christian Bale
5. Tom Welling
6.Jude Law (flott týpa)
7. James Denton

ótrúlegt hvað leikarar virðast upp á pallborðinu hjá mér.......eru þeir ekki frægastir?? æi, fullt af öðrum frábærum dúddum þarna úti....þetta voru bara þeir sem mér datt strax í hug. CSI og House (Cahill & Spencer) eru uppáhaldsþættirnir, Alfie (Law) er mér enn í fersku minni. Welling tengi ég við hið frábæra lag "Somebody save me" úr Smallville. Despó (Denton) eru bara snilld og Vartan er einfaldlega bara fallegur. OG Bale..... - alltaf verið on.

.....já ég veit - hef gríðalega góðan smekk fyrir karlmönnum. Eins shallow og ÞAÐ hljómar enda eingöngu um myndir að ræða. Segjum bara sem svo að þeir passi við þau sjö atriði sem að ofan hafa verið talin.
|

sunnudagur, nóvember 20

Osvei!

Það er þrjátíuþúsund fetum ofar mínum skilningi að fólk skuli auglýsa sóðaskap sinn með því að fara í þáttinn Allt í drasli.
|

laugardagur, nóvember 19

Blaðið

....blaðið í dag inniheldur 65 auglýsingar á 55 blaðsíðum. Þar af eru 26 blaðsíður BARA auglýsingar. Heilsíðu auglýsingar.
.......Smá háskólapæling.

Er annars með hausverk eftir eggjapúns í gær. Hvað er þá betra en að telja auglýsingar og blogga um það?
|

þriðjudagur, nóvember 15

Drullukaka


Drullukökukast og meiðyrði eru í tísku í dag.

Í morgun þegar ég var á leið í tíma hjá Hannesi hringir síminn. Klukkan var 09:05 og á línunni var Addi a.k.a fatli. Hann spyr hvort að ekki sé tími. Heldur betur hélt ég. Þá tjáði hann mér að enginn væri mættur. Þegar ég mæti standa þeir tveir þarna. Addi og Hólmsteinn. Allt í einu ákváðu allir hinir að skrópa. Kannski tóku þau sig saman og sýndu með táknrænum hætti samstöðu sína með Jónsbókinni. Hannes var ekkert sérlega sáttur og sagði ekki fundafært og því myndi tíminn falla niður.

Að lokum sagði hann okkur að Jonni Óla hefði sent sér boðskort í útgáfupartýið. Fannst það ósmekklegt.

Ég held með hvorugum í sínum málum. Hvað varð um heimildirnar? "ég tel..." ,"ég heyrði.....", "menn segja...."

* Meðfylgjandi mynd er tekin 1958 af Jóni Ólafs (vinstri) og Hannesi Hólmsteini (hægri) meðan allt lék í lyndi.
|

mánudagur, nóvember 14

MSN hallæri

Tölvan hefur tekið fyrir msn notkun mína. Þrátt fyrir róttækar aðgerðir tekst mér með litlu móti að virkja það. Ég hef því sagt skilið við net-tjattið í bili. Þetta er líka ljótur ávani og eina sem það hefur gert fyrir mig er að ræna frá mér tíma sem á að fara í lærdóm. Ég þakka því tölvunni þann mikla greiða sem hún gerði mér með því að loka á MSN notkun mína. Tölvan fær líka sérstakar þakkir fyrir að koma mér hjá því að leita mér aðstoðar á meðferðarstofnun við þessari hrikalegu fíkn sem fylgir msn. Næst vona ég bara að bloggið fari að neita mér um aðgang. Þá hef ég ekkert betra að gera en að lesa fyrir prófin sem senn nálgast.

Þið sem þurfið að ná í mig og ætlið að ná mér á msn verðið bara að taka upp símann. Ég mun alla vega hringja í fólk framvegis. Hlakka til að heyra í ykkur.

alltílæbless
|

......

Á mbl.is klukkan 11.17 var frétt um Baugsmálið. Þar kemur fram að krafist sé úrskurðar um hæfi dómsmálaráðherra til að skipa ríkissaksóknara. Gott mál það. Það sem er ennþá betra er að fyrir neðan fréttina auglýsir Bónus gjafabréf. Frá 5000 kr - 10.000 kr. Jólagjöfin í ár. Og hvað er fólk þá að rífa sig með það að ekki sé auglýst hjá samkeppnisaðilanum. Það er bara víst gert.
|

sunnudagur, nóvember 13

að þroskast........

Alltaf að komast að því hve óþroskaður tónlistasmekkurinn er. Ætlaði mér á Airwaves en ekkert varð úr því þetta árið.......ekki frekar en þátttaka mín á IceMUN. Í partýi á föstudaginn heyrði ég í fyrsta skipti hvaða lög Depeche Mode eiga og þeir eru bara helvíti góðir. Það liggur við að ég skammist mín þegar ég tjái ykkur það að í gær uppgötvaði ég The Smiths......hafði heyrt þessi helstu en vissi aldrei almennilega hverjir voru þarna á ferðinni. Þetta er því allt að koma og Kristín að þroskast. Ætla að byrja að fara á tónleika.......á næsta ári.
Viljinn er til staðar.
|

föstudagur, nóvember 11

Pæling dagsins:

Pæling dagsins er stytting framhaldsskólanáms. Nánari útfærslu á þeirri pælingu minni má finna á Deiglunni. www.deiglan.com
|

fimmtudagur, nóvember 10

Góðir dagar

Gærdagurinn var einstaklega góður dagur. Eftir að vera búin að sitja yfir ritgerðasmíð um morguninn fór ég í rannsóknatíma. Þeir eru reyndar ekkert þeir skemmtilegustu en hvað um það. Íslenska leiðin kom úr prenti loksins og gátum við nú montað okkur almennilega með því að klína blaðinu upp í alla á svæðinu. Eftir tímann ákváðum við Sigrún, Hilmar og Þórir að skella okkur á stúdentakjallarann í kaffi. Enduðum í pizzu og smá bjór. Ekki stóð til að fá sér bjór fyrr en eftir að Kristín fékk skemmtilegt símtal. Þannig er að Sigrún á alveg eins síma og ég ÁTTI, nokia 6110i. Ég er eitthvað að pæla í símanum okkar og segji að ég geti ekki náð í nýja hringitóna í hvíta "flipp" símann. Segji svo að ég vildi óska að ég hefði ekki hent kassanum undan gamla símanum því þá hefði ég getað látið rekja símann. (fyrir þá sem ekki fylgja þá týndi ég símanum í september) ÁN GRÍNS, þá hringir síminn svona mínútu síðar og á hinni línunni er starfsmaður Ogvodafone að segja mér að síminn minn sé fundinn. Ótrúlega varð ég sátt en á sama tíma ótrúlega pirruð út í helvítis rútubílstjórann sem drullaðist ekki til að skila símanum mínum fyrr en tveimur mánuðum síðar!!

Eftir veruna á stúdentakjallaranum fór ég á miðstjórnarfund og auðvitað fengu allir þar íslensku leiðina. Síðan var auðvitað kíkt á litlu fjölskyldudna á Vesturgötunni, Heiðu, Emily og Cristó og eftir það heim í ritgerð.

var annars búin að segja við siggu að ef síminn kæmi í leitirnar þá fengi hún hann lánaðan, enda með bilaðan síma - hún missti þó af því þarf sem hún fékk sér nýjann um daginn á leið til France.
|

miðvikudagur, nóvember 9

Kristín fyrir tveimur árum:

Í nóvember 2003 birtist þessi saga á blogginu hjá mér............

Síðasta vetur, þegar hráslagalegt hafði verið um hríð, ákváðu hjón ein að
flýja vetur konung í viku og pöntuðu sér ferð suður í höf. Þannig
atvikaðist að konan þurfti að fljúga degi síðar en ætlað var en
eiginmaðurinn flaug á undan..


Þegar kallinn er kominn á hótelið rífur hann upp ferðatölvuna og skrifar
strax bréf til konu sinnar. Ekki vildi betur til en svo að hann misritaði
einn staf í adressunni og lenti bréfið hjá ekkju einni sem nýbúinn var að
jarðsetja sinn heittelskaða. Ekkjan sem rétt var búin að jafna sig eftir
athöfnina, var í þann mund að líta eftir samúðarkveðjum þegar bréfið
barst......

Þegar sonur ekkjunnar kom heim lá hún í yfirliði fyrir framan tölvuna og
þetta stóð ritað á skjáinn:

Til: Konu minnar sem eftir var
Frá: Manninum þínum sem fór á undan
Efni: Er kominn á áfangastað

Elskan,

Er kominn heill á húfi. Er búinn að kynna mér allar aðstæður og gera allt
klárt fyrir komu þína á morgun. Óska þér góðrar ferðar og bíð þín með
óþreyju. Ástarkveðjur,

Þinn eiginmaður.

P.S. Fjandi heitt hérna niður frá!
|

þriðjudagur, nóvember 8

Undir þínum áhrifum

Óhætt að fullyrða að Sálin sé besta hljómsveit fyrr og síðar hér á landi. Nýja lagið þeirra "Undir þínum áhrifum" er guðdómlegt. Klárlega ætla ég að kaupa mér þennan nýja disk pilta. Myndbandið við þetta lag á einnig hrós skilið og ég skal hundur heita ef það fær ekki verðlaun á næstu tónlistarverðlaunahátíð.
|

Hjá skósmið:

Í miðbæjarferð minni á föstudaginn kom ég við hjá skósmið. Heiða vinkona hafði bent mér á "skóara" í Garðastræti. Mjóg fljótlega rakst ég á kjallarann sem hann er staðsettur eftir að hafa kíkt inn í fatabúð Hjálpræðishersins. Litla "verkstæðið" hans var mjög notalegt og skósmiðurinn með eindæmum almennilegur. Stígvélin ætlaði hann að laga á örskammri stundu og bauð mér að bíða. Á meðan ég bíð kemur gömul kona inn. Ég bíð eftir augnkontakti til að geta boðið góðan daginn. Hún lítur ekki á mig og bíður eftir afgreiðslu eins og henni væri mikið í mun að láta laga skó eða sækja skó. Eftir augnablik kemur aðstoðamaður skósmiðsins fram og spyr þá gömlu hvor hann gæti aðstoðað hana. Þá segir sú gamla: "Langaði bara að sýna ykkur hvernig ég notaði reimarnar sem ég keypti hjá ykkur um daginn. manstu þessar sem voru flatar og gráar!!" á sama tíma grípur hún um reimar sem hún hafði fest á gráa ullar-mokka-húfu. að lokum segir hún, "ég gerði þetta til þess að húfan myndi ekki fjúka af mér í rokinu." Eftir þetta snýr sú gamla sér við og labbar út. Við aðstoðarmaðurinn litum hvort á annað og gátum ekki annað en brosað.......og gott betur en það.
|

mánudagur, nóvember 7

Fuglaflensan og spænska veikin

Manni er ekki farið að standa á sama um þennan yfirvofandi heimsfaraldur sem blasir við ef núverandi fuglaflensu veira nær að stökkbreyta sér. Þessa frétt er að finna á mbl.is í dag:

"Yfirmaður WHO: Aðeins tímaspursmál hvenær flensufaraldur brýst út
Lee Jong-Wook, yfirmaður alþjóðlegu heilbrigðisstofnunarinnar, WHO, varaði við því í dag að einungis væri tímaspursmál hvenær flensufaraldur brytist út. Kom þetta fram í máli hans þegar hann setti þriggja daga ráðstefnu um baráttuna gegn fuglaflensu af stofni H5N1. „Ef við verðum ekki viðbúin mun næsti faraldur valda ómældum hörmungum ... Ekkert land mun sleppa og ekkert hagkerfi verða óskaddað.“

Ráðstefnan fer fram í Genf og hana sitja um 400 sérfræðingar og ráðamenn hvaðanæva úr heiminum. Verða þeim þar veittar nýjustu upplýsingar um fuglaflensuna og fara þeir einnig yfir aðgerðir er miða að því að auka eftirlit með dýrum og undirbúa viðbrögð við faraldri meðal fólks."

Veirunni hefur verið líkt við spænsku veikina ef hún nær að stökkbreyta sér - til að fólk átti sig á því hvað hugsanlega gæti verið í vændum er tilvaldið að koma með smá fróðleiksmola um þá veiki:

Árið 1918 geisaði inflúensufaraldur um heimsbyggðina og fórust í þessum faraldi yfir 20 miljónir manna um allan heim. Faraldur þessi gekk yfir í þremur bylgjum, sá fyrsti var í maí og júní. Gekk hann snögglega yfir og olli tiltölulega fáum dauðsföllum. Um mánaðarmótin september/október kom önnur bylgja og var það hin svo kallaða Spænska veiki og var það úr henni sem flestir létust. Þriðja bylgjan gekk svo yfir vorið 1919 og var hún væg.3

Talið er að faraldur þessi hafi borist til Íslands með farþegum af gufuskipinu Botnía, sem var að koma frá Kaupmannahöfn fyrstu dagana í nóvember 1918. Það veiktust margir fyrstu daganna og breiddist veikin hratt út um Reykjavík. Einkenni veikinnar voru svæsinn og ákafur hiti, höfuðverkur, óráð, uppköst, niðurgangur, blóðnasir, ákafur hósti og lungnabólga var algengur fylgikvilli. Á þessum tíma var aðeins ein lyfjabúð starfrækt í Reykjavík og var hún opin frá klukkan 7 á morgnanna til klukkan 2 eftir miðnætti vegna afgreiðslu lyfseðla. Þann 6. nóvember hættu dagblöðin að koma út vegna veikinda starfsfólks, en reynt var að birta upplýsingar á fregnmiðum víðsvegar um bæinn. 2 Á þeim tíma sem Spænska veikin geisaði í Reykjavík bjuggu þar um 15.000 manns og innan tveggja vikna voru um 10.000 manns búnir að veikjast af inflúensunni. 1

Á þessum tíma voru bara 3-4 læknar sem sinntu sjúklingum og komust þeir ekki yfir að vitja allra þeirra sem þess þurftu. Smá saman lagðist vel flest starfsemi niður til sjós og lands. M í því sambandi nefna að brauðgerðarhúsin lokuðu ásamt mörgum verslunum, landsímastöðin lokaði og voru ekki afgreidd nein símtöl eða skeyti. Það olli einnig miklum erfiðleikum að flytja lík úr heimahúsum í líkhús, þar sem lögreglan var fámenn. Lögreglunni hafði verið falið að flytja sjúklinga en starf þeirra varð þó frekar fluttningur á líkum.2

Þann 9. nóvember skipaði stjórnarráð í hjúkrunarnefnd til að hafa umsjón með framkvæmdum til hjálpar þeim sem höfðu veikst af influensunni. Bænum var skipt niður í hverfi til að hjúkrunarnefndin fengi sem besta yfirsýn yfir ástandi. Ráðinn var hverfisstjóri til könnunnar og eftirlits. Þeirra starf var að athuga heimilisaðstæður manna í sínu hverfi og vera til hjálpar þar sem þess þurfti. 1 Nefndin fékk Miðbæjarskólann til afnota og breytti kennslustofum þar í sjúkrastofur og þangað voru fluttir þeir sjúklingar sem verst voru haldnir og bjuggu við bágar aðstæður.2

Um svipað leyti og veikin náði hámarki í Reykjavík fór að bera á henni í nágrannabyggðum Reykjavíkur, fyrir austan fjall, upp í Borgarnesi og á Suðurnesjum ásamt ýmsum kaupstöðum og kauptúnum. Reynt var að stemma stigu við útbreiðslu Spænsku veikinnar austur við Þjórsá en það gekk ekki. Næst var reynt að stöðva hana við Markarfljót en ætlunarverkið tókst ekki fyrr en við Jökulsá á Sólheimasandi. Influensan kom niður víða í Borgarfirði og komst norður til Hrútafjarðar, Ísafjarðar og Siglufjarðar en hún var vægari þar heldur en í Reykjavík. Talið er að um 260 manns hafi látist úr Spænsku veikinni í Reykjavík og um eða yfir 300 manns á landinu öllu.4

Heimildalisti

1. Ágúst Jósefsson (1959). Minningar og svipmyndir úr Reykjavík. Prentsmiðjan Leiftur, Reykjavík, s.198-209.

2. Gunnar M. Magnúss (1965). Árin sem aldrei gleymast: Ísland og Heimsstyrjöldin 1914-1918. Skuggsjá, Reykjavík, s.265-291.

3. Páll V. G. Kolka (1964). Úr myndabók læknis. Setberg, Reykjavík, s.31-50.

4. Öldin Okkar : minnisverð tíðindi 1901-1930 (1950). Gils Guðmundsson ritstjóri. Iðunn, Reykjavík, s.165-169.

Upplýsingarnar fékk ég á síðunni: http://www.vortex.is/sigrun/Iceland.html
|

sunnudagur, nóvember 6

heimsborgari

tók miðbæjarferð á föstudaginn, eftir að hafa náð að henda inn ritgerðinni í tæka tíð. gekk niður Tjarnagötuna og áttaði mig á raunverulegum kulda þegar ég leit á tjörnina sem var helfrosin. Ég var illa búin, í þunnum buxum, hettupeysu, gallajakka en hafði þó vit á að setja á mig trefil og vettlinga. Ástæðan fyrir klæðnaðinum má rekja til Sigga storms. Hann lofaði hlýju og að kuldakastinu væri lokið í bili. Gangan í miðbæinn var engu að síður hressandi. Þegar ég gekk inn á Austurvöll fór ég að velta höfuðborg okkar fyrir mér þar sem ég var nú stödd í hjarta borgarinnar. klukkan var rúmlega ellefu um morguninn og örfáar hræður á vappi. Á sama tíma fór ég að hugsa um þegar ég var í Danmörku í janúar fyrir tæpum tveimur árum. Ég horfði á Hótel Borg um leið og ég gekk fram hjá styttunni af Jóni forseta. með ryðgað bárujárnsklætt þakið furðaði ég mig á því að þarna fyrir innan væri svítan. Og þegar ég hugsaði til Danmerkurferðar minnar mundi ég eftir stórkostlegum byggingum í hjarta kaupmannahafnar og margmenni á götum úti. Á nákvæmlega þessari stundu áttaði ég mig á því hve gríðalega lítil borgin okkar er.......eða hve mikill heimsborgari ég er farin að vera. ég hélt áfram göngunni og þegar ég nálgaðist lækjartorgið tók hjarta borgarinnar kipp. Eftir borgarpælinguna leit ég inn hjá mæðgunum Heiðu og Emily. Á leiðinni heim gátu endurnar við tjörnina unað sáttar enda klakinn farinn að bráðna.
|

laugardagur, nóvember 5

Íslenska leiðin komin út!

|

miðvikudagur, nóvember 2

Þar sem eru börn, þar eru eilíf jól



Fæ ekki nóg af þessu barni. Varð að setja inn eina í viðbót þar sem Sigga kvartaði yfir litnum á hinni.

Annars á þetta ljóð vel við englasnótina:

Gleðst eg þegar geislinn skín,
geymi sorg og trega.
Best þó kæta brosin þín
barnið elskulega.

Margrét nokkur Jónsdóttir samdi.
|

þriðjudagur, nóvember 1

Emily



Fórum áðan vinkonurnar og heimsóttum elskulegu Heiðu okkar. Hún og Kristofer eignuðust lítla englasnót þann 3.september nokkuð fyrir tímann. Meðfylgjandi er mynd af prinsessunni sem er fallegust. Hún var 10 merkur og gæti þess vegna hafa verið að fæðast í gær, svo lítil og nett er hún.
Hún ber hið fagra nafn Emily.

-Hef ég þegar ákveðið að taka að mér skáfrænkuhlutverkið og mun reglulega banka upp á og spyrja hvort ég megi passa.

Eins og sést var myndin tekin á símann því hleðslusnúran fyrir myndavélina mína gleymdist í Grindavík.
|