sunnudagur, október 30

Misheppnaður Egill - sjalfumglaður Gísli

Sjá hluta af Silfrinu áðan. Mér finnst alltaf gaman að því þegar tökur hefjast áður en þáttastjórnendur átta sig á því að verið er að sýna þá "live". Gerðist áðan hjá Agli Helga. "Nei, horfið bara á mig......ekki í myndavélina." Þetta sagði hann við þá Gísla Martein og Vilhjálm Vilhjálms, sem báðir berjast um oddvitastöðuna hjá Sjálfstæðisflokknum í Borginni. Hvað er málið með það að mega ekki horfa í myndavélina? - var Egill hræddur um að Gísli gæti ekki verið hinum megin við borðið og færi jafnvel að stjórna þættinum hans? Annars finnst mér merkilegt hvað menn geta alltaf haft orð andstæðinga sinna að leiðarljósi og sem reglu um leið og það þóknast viðkomandi. Þetta gerði Gísli Marteinn með því að vitna í Mörð Árnason af öllum. Jú, Mörður á að hafa haft þá skoðun að þeir stjórnaranstæðingar sem vildu Vilhjálm í fyrsta stætið skv skoðunarkönnun vildu hann frekar því þá væri auðveldara að sigrast á flokknum. Gísli tekur þessu að sjálfsögðu sem svo að hann sé hinn eini rétti í Borgina, því þeir sem eru EKKI sjálfstæðismenn og vilja frekar Villa, vilji hann bara því hann eigi ekki að geta staðið sig. Þvílík vitleysa. Eru menn svona ótrúlega uppfullir af sjálfum sér að þeir geti ekki trúað því að aðrir geti verið hæfir til verks?

Ég vil þann hæfasta og ég tel Gísla alls ekki vera það - hann var góður í morfís, góður í Vöku, góður á RÚV - en hann þarf að bíða með Borgarstjórastöðuna. Nema hann sé að reyna að taka Geir Hallgríms/Davíð Odds á þetta, gæti verið.
|

föstudagur, október 28

Loksins kom snjórinn!

Í tilefni af því að fyrsti snjórinn hefur látið sjá sig á suðvesturhorninu hef ég ákveðið að taka fram geislaplötuna Pottþétt jól 2. Það er vel viðhæfi. Ennig hef ég tekið fram hitapokann góða og uni sátt með hann á köldum tánum.

Hef lokað mig af fram að 4.nóvember - þá eru ritgerðaskil hjá Baldri og útgáfupartý á Pravda. Eftir það loka ég mig aftur inni,til að skrifa ritgerð hjá Hannesi Hólmstein sem skila á 7.nóv og eftir það fer ég á Klepp.

Gleðilegan vetur.
|

þriðjudagur, október 25

Eitt Norðurljós takk!

það besta við veturinn eru ekki bara jólin sem framundan eru heldur fylgja Norðurljósin líka vetrinum, það magnaða er að í öllu neikvæðu má finna eitthvað jákvætt. í skammdeginu, því svartasta, finnur maður jólaljósin.......OG Norðurljósin. labbaði heim áðan af Stúdentakjallaranum og norðurljósin voru massív. Mikið væri ég til í að geta keypt mér eitt stykki Norðurljós og skellt í í loftið þegar ég fer að sofa.

Helgin einkenndist annars af fundarsetu á þingi Norðurlandaráðs ungliða. fórum m.a. í móttöku í Ráðhúsið og í dinner í Viðey í boði KB-Banka. Blaðið okkar í stjórnmálafræðinni fer senn að koma út og ekki nema rúm vika í útgáfupartýið mikla sem haldið verður á Pravda. allir greinahöfundar, auglýsendur, styrktaraðilar, nemar í stjórnmálafræði og kennarar fá að mæta en þeir útvöldu fá boðskort, sem elskulega anna vala er að hanna.

Fannst annars kvennafrídagurinn sæmilegur í gær - fékk innilokunarkennd á Ingólfstorgi og lagði upp í mission impossible á móti staumnum við lítinn fögnuð kynsystra minna. Var að spá í að kalla "woman in labour" en áttaði mig fljótt að það myndi ekki virka. tók bara skynsemina á þetta og ráðlagði öllum konum sem ég tróðst framhjá að fara ekki lengra, þetta væri hætt að vera sniðugt. allt of mikill troðningur og þakkaði ég mínu sæla að ná að bjarga mér inn á Subway til að ná andanum.

Næst kveiki ég bara á útvarpinu.
|

mánudagur, október 17

Innlegg fra Konna

Konráð Pálma er ekki alvitlaus. Þetta innlegg kom frá honum í dag:

örvhentir eru listrænni en rétthentir en að sama skapi nær þess
að verða geðveikir en annað fólk, það er vísindalega sannað

- ég er örvhent og listræn - Konni er örvhentur og geðveikur
|

laugardagur, október 15

Fótbolti á Hagstjórnardegi

Hagstjórnardagurinn var í gær. Hagfræðin á móti stjórnmálafræðinni í hinum ýmsu greinum. tvær nýjungar litu dagsins ljós. Fótbolti kvenna og skák. Mjög strembið var að ná í fótboltalið okkar stúlkna og leit út fyrir að við þyrftum að gefa leikinn til hagfræðinnar. Að lokum tókst okkur þó að ná í lið og unnum hagfræðistúlkur 12-0. Harðsperrur hafa einkennt daginn ásamt "nettum" timburmanni. Vísindaferð í aðalbankann ásamt hagfræðinni var skemmtileg enda veitir Landsbankinn alltaf vel. Eftir fyrirlestur um ágæti bankans, bjór og snittur fórum við á Gaukinn þar sem við tók ennþá meiri bjór, skákkeppni, bjórþamb, sjómann, spurningakeppni og annað skemmtilegt. Því miður töpuðum við Hólmsteininum í ár - og í raun Hagfræðin líka, því einhver stal verðlaunagripnum sjálfum. Gerðist líka í fyrra. - Húmor.
|

þriðjudagur, október 11

Þessi gullkorn.....

Elskuleg Bríet mín sendi mér þessa snilld yfir msn áðan:

Jafnvel eitthvað til í þessu stelpur? Eigum við ekki að segja það - við sem sitjum ennþá hátt hátt uppi í tré? Þar svo ágætt að vera :)

Women are like apples on a tree. The best ones are at the top of the
tree. Most men don't want to reach for the good ones because they are
afraid of falling and getting hurt. Instead, they sometimes
take the apples from the ground that aren't as good, but easy. The apples at
the top think something is wrong with them, when in reality they're
amazing. They just have to wait for the right man to come along, the
one who's brave enough to climb all the way to the top of the tree.
Share this with other women who are good apples, even those who have
already been picked!

Now men...
Men are like a fine wine. They begin as grapes, and it's up to women
to stomp the shit out of them until they turn into something
acceptable to have dinner with.
|

mánudagur, október 10

Oktoberfest og Papar

Ný vika er hafin, AFTUR - í hvert skipti sem það gerist hugsa ég með mér að nú séu bara 7 vikur í próf eða 8 vikur. Líður aðeins of hratt. En helgin var skemmtilegt og gleðin hófst strax á fimmtudaginn. Klárlega eiga þýskunemar við Háskóla Íslands stóran heiður skilinn fyrir sitt frábæra Októberfest sem verður BARA stærra og stærra. Í ár fengur þeir stærsta tjald á Íslandi til þess að halda herlegheitin og á föstudagskvöldið var það búið að sprengja ALLT utan af sér og meira en kílómetraröð hafði myndast fyrir utan aðalinngang tjaldsins. Þegar inn var komið áttum við ekki til orð yfir fjöldann og hressleikann sem ríkti á svæðinu. Fólk var alls staðar með bjórkrúsirnar sínar, sem seldust NB upp snemma á föstudeginum. Holstein bjórinn var ekki að gera sig fyrir stúlku og drakk hún því eftir því þetta kvöldið. Enduðum á Celtic, bæjarins bestu og svo í belgískri vöflu áður en taxinn var tekinn í kotið.

Á laugardagskvöldið fór stúlka suður í Grindjánaborgina að vinna í Festi. Hinir ótrúlega hressu Papar héldu uppi stuðinu til að verða fimm og tókst mér að laða fram mína ótrúlegu bartakta síðan ég lék í myndinni "Ljótir sléttuúlfar". Almennt var fólkið hresst og settlegt, en aðrir héngu fram á barborðið og pöntuðu þrefaldann í kók. Ballið heppnaðist vel og taldi hátt í 500 manns. nokkuð gott bara.

Sunnudagu fór svo í spjall við familíuna, pítsuát, rúnt niður í Pennann Austurstræti að ná í vettlingana sem ég er búin að týna þrisvar og síðast en ekki síst í undirbúning á framsögu sem skal flytja á morgun.
|

laugardagur, október 8

Kristín María Birgisdóttir II

Ég vissi að ég ætti eina alnöfnu á Íslandi, Kristínu Maríu Birgisdóttur II. eða reyndar I, hún kom víst á undan. Aldrei bjóst ég samt við því að fá alltaf endrum og sinnum póstinn hennar inn um mína lúgu þar sem búið væri að krassa yfir Borgarfjarðarsveit og merkja "Eggertsgata 20 íbúð 004" EN jú, viti menn.........fór vandræðaleg um daginn að Eggertsgötu 10, því það hafði í raun verið krassað yfir Eggertsgötu 10 og sett í staðinn "rétt heimilisfang Eggertsgata 20 íbúð 004" umslagið var ekkert merkt neinu sérstöku fyrir utan nafnið, stóð ekkert "Ríkisskattstjóri" eða neitt álíka þannig að ég reif bara upp umslagið. Nei nei, þá var þetta alls ekkert til mín því ég kannast ekki við að eiga barn á leikskóla. Ég fer því með póstinn að Eggertsgötu 10 og athuga hvort að nafna mín búi ekki þar. Jújú, passar. Ég finn hólfið hennar en ákveð samt að hringja hjá henni til að láta hana vita af hverju eitt umslagið í hólfinu sé opið. En hún svarar ekki. Ég ákvað því að láta þetta vera þarna og hugsaði með mér að hún myndi sennilegast átta sig á ástæðunni fyrir því að ég opnaði umslagið. Svo í gær kom til mín stórt brúnt umslag með fullt af öðrum umslögum, framan á þessu brúna stóð "Adresse compléte du destinataire: Eggertsgata 20 íbúð 004" og inni í þessu blessaða brúna umslagi er póstur til Kristínar Maríu Birgisdóttur sem bjó einu sinni í Borgarfjarðarsveit. Held að pósturinn þurfi að átta sig á því að það eru tvær með þessu nafni á Íslandi og þær búa EKKI í sömu íbúð þó svo að þær séu Eggertsgötubúar. - Vona bara að hún skili mér mínum pósti ef hann villist af leið. Læt þá bara Bogga um að tékka á því, þau er víst félagar í sálfræðinni. Komst að því þegar Boggi hélt í alvörunni að ég hefði ákveðið að skrá mig í vísindaferð hjá sálfræðinni. Right.
|

miðvikudagur, október 5

Bækur, bækur, bækur,bækur

já, keypti mér fjórar bækur. Hvernig getur Ísland orðið ríkasta land í heimi - eftir Hannes Hólmstein. Búin með fyrsta kaflann, lofar góðu - finnst eins og ég hafi lesið þetta allt áður. Fór svo með inneingarnótuna úr Pennanum sem Gutti át næstum og ég sat lengi og límdi saman - konurnar í Pennanum sprungu út hlátri þegar þær sáu hana, svona smekklega límda og ég gat ekki annað en hlegið með þeim. Sem betur fer náði hundurinn ekki að éta mikilvægustu upplýsingarnar, s.s. eins og upphæð, mitt nafn og það að þetta var nóta frá Pennanum. Bækurnar sem ég tók mér í dag voru Forsætisráðherrar Íslands, Furstinn eftir ítalska gúrúið Niccoló Machiavelli, sem kennir manni ýmiss óþokkabrögð og Frelsið eftir J.S. Mill, hún á víst að kenna manni að beita skynsemdarrökum í siðferðisefnum. Ég er sannfærð um að eftir lestur þessara bóka mun líf mitt verða betra. Þegar ég opnaði bókina um forsætisráðherrana snéri allt öfugt, jú, hún prentaðist öfugt inn í kápuna. Heppin.

Lét svo verða að því að kaupa hið magnaða myndaalbúm fyrir myndirnar síðan á Ítalíu og ég mun leyfa öllum að sjá sem koma í heimsókn hve frábær þessi ferð var.

Hef ákveðið að safna Lærdómsritum Íslenska bókmenntarfélagsins. Á núna tvö (þetta er allt að koma), Frelsið eftir J.S. Mill og Mennt er máttur eftir Max Weber - skemmtileg, fræðandi og auðlesin rit!
|

þriðjudagur, október 4

Evropusambandið á full span og belgiskt ÖL

Það er svo skemmtilegt við stjórnmálafræðina að alþjóðakerfið tekur alltaf sífelldum breytingum og bókin sem ég hafði í fyrra er úreld í ár. Nýjustu fréttir af ESB er að Tyrkir hafa LOKSINS komist á eitthvað skrið með aðildarviðræður en þær munu engu að síður taka nokkur ár. En það skemmtilega er að þær eru líka hafnar við Króatíu. Á meðan það gerist ræðum við ástæður fyrir því hvers vegna Ísland og Noregur hafa ekki ENN gengið inn og hver staða smáríkjanna er í þessum mikla samruna sem er að eiga sér stað.

Hef svo komist að þessu:
* Laufin eru að falla af trjánum í þessum rituðu orðum
* Mjólk er ekki eins holl og haldið er fram skv Sirrý vinkonu og blogginu hennar
* fjólublár kristall plús er betri en rauður
* Íslenskir karlmenn eru fallegir
* Kennarar við HÍ eru klárir
* Vaka verður bara betri
* íslenskur bjór er ekki lengur góður
* meira djamm er yfir veturinn en sumarið - í raun ætti það að vera öfugt
* reykingabann er mjög móðins að mínu mati

- ætli bjórinn verði ekki ódýrari við inngöngu í ESB?

takkfyrirbless
|

mánudagur, október 3

Pælingar

fékk senda áðan áhugaverða skýrslu frá Andríki eða VefÞjóðviljanum varðandi útsvar sem við greiðum til sveitarfélaganna. Mæli með því að fólk lesi þessa skýrslu: www.andriki.is
|

sunnudagur, október 2

athyglisvert

Málþingið sem ég sótti á föstudaginn var áhugavert. Hafði gaman að - þó svo að ég hefði setið í 3 klst þá glósaði ég eins og vindurinn og er stefnan sett á pistlabakstur með hráefnið. Meira um það síðar. Sóttum afmæli í gær en Emilía Sjöfn átti 24 ára afmæli föstudaginn 30.september. Til lykke elskan. Eftir það fórum við Bríet á tvo ágætist skemmtistaði og rak ég augun í athyglisverða hluti enda ekkert áfengi við hönd þetta kvöldið. Verð að segja að Vegamót og Ólíver eru bara alveg ágætir.....En Ólíver þarf hins vegar að læra það af Vegamótum að það þarf pláss til að geta unnið þarna sem dyravörður. Mæli með því að þeir stækki "free space" með keðjum og kenni íslensku skemmtanaþyrstu fólki að mynda venjulega biðröð - klárlega er fólk í glasi ekki að ná því að standa í biðröð fyrir utan Ólíver - Jú staðurinn er ungur og þeir þurfa að fara að draga lærdóm af skipulaginu annars staðar. Hins vegar þegar komið er inn á Ólíver þá skýtur hann Vegmótum ref fyrir rass hvað varðar hönnun og skipulag - óþolandi að ganga inn á Vegamót og beint inn a dansgólfið. Hann er eitthvað svo ópraktískur í hönnun.

annars finnst mér þessi mynd sýna fyrirmyndar klúbb þar sem fólk kann að standa í röð- vantar líka svona bleika bíla í Reykjavík city.

Hef komist að því að við, Eyrún & Sigga Dögg þurfum að hitta á algerlega gallalausa mynd ef að við ætlum að halda kjafti á sunnudagsvideokvöldi en myndin Sahara fékk að kenna á þvi í gær! "Hi, how are you doing?". skemmtilegt. mátti eiga það að hún var fyndin.
|

laugardagur, október 1

kjanahrollur!

datt inn í leitina að íslenska piparsveininum. vissi að ég fengi kjánahroll. kannski eru einhverjir fyrir svona stefnumótastemningu..........
|