Eftir að vera búin að bíða eins og barn eftir jólunum þar sem flestir í kringum mig sem ekki fóru á þjóðhátíð voru farnir að örvænta að Kristín kæmi heim á mánudag með brostnar vonir er vert að fara yfir atburði helgarinnar.
Í fyrsta lagi var hópurinn með betra móti og ekki hægt að kvarta yfir fýlupúkum né slöku drykkjufólki (fyrir utan einn ágætismann - en það er afsakanlegt - bindindiamaður á ferð en engu að síður hinn mesti stuðbolti og gítarspilari) Eftir að vera búin að bíða í um klst eftir fluginu (þar sem við náðum að fara með Stefaníu líka -en hún átti flug kl:14.00 og við 16.30) kom hvorki meira ne minna en þota frá Skotlandi að ná í mannskapinn þar sem áhöfnin var færeysk. Flugvél hafði bilað og því var gripið til þess ráðs að fá alvöru vél, sérstaklega í ljósi þess að við vorum á leiðinni :) Við flughræddu píurnar (moi og Stefanía) plönuðum að sitja saman sökum sameiginlegs vandamáls þar sem við gátum kreist hendur hvorrar annarar án þess að finna til! Þegar kom svo að lendingu lá við að ég endaði í fanginu á Soggu Dögg sem sat fyrir framan mig - en vélin þurfti að beita öllum sínum kröftum í að snaaaaarhemla svo við lentum ekki í sjónum....flugbrautin í Eyjum er víst ekki sú lengsta í heimi.
Þegar til Eyja er komið er enginn annar en Brynjólfur mættur til þess að taka á móti mannskapnum og stóri jeppinn vel tilbúinn til þess að ferja okkur stöllur þrátt fyrir mikinn farangur. Við keyrðum svo að Fjólugötu 21 þar sem við blasti hið fallegasta einbýlishús. Þegar þangað var komið var opnaður bjór og grillaðir hamborgarar - Birgir mætti svo hress með gítarinn og Fjólugötumafían var orðin þjóðhátíðarspennt. Ég, Brynjólfur, Stefanía, Sigga Dögg, Maren, Heiðdís Halla, Sigrún, Guðjón og Arnar bróðir hans og Birgir Hrafn settum okkur í stellingarnar inni í stofu og tókum lagið áður en í dalinn var haldið. Viðlagasyrpan vakti lukku.
Við fórum svo í Dalinn um 23 leytið og auðvitað var kíkt í Lundaholur 49 hjá bróðir Brynjólfs og þar var bara tekið vel á móti okkur. Skvísusundið var líka skemmtilegt þar sem að fjölskyldan hans Birgis var líka með tjald og almennilegheit. Svo var haldið í brekkuna og þar hittum við fleiri vitleysinga og annað fullt fólk sem skemmti sér og öðrum. Daginn eftir var ég búin að týna anorakknum, vettlingum og NIKE húfu sem mér hefur líka tekist að glata á hinum þjóðhátíðum sem ég hef farið á. Nike húfum já.
Á laugardeginum var veðrið frekar súrt. Ringning og þoka og okkar ágæti Árni Helga komst upp í Bakkavélina en ekki lengra sökum þoku. Deginum eyddum við í flotta húsinu með bjór og pizzu og mikið Friends áhorf þar sem við hlógum okkur máttlaus - bæði af Friends og 5 aura appelsínubröndurum. Fórum svo í kjötsúpu til
Bogga þar sem félagar hans í
VKB fóru á kostum með setningunni : "hvað er að brenna? - typpið á Jóa Henna!!" Við héldum svo í dalinn vel klædd (að ég hélt) þar sem MAN-UND regnhlífin hans Sigga bró bjargaði okkur frá drukknun. Klárlega var hápunktur hátíðarinnar innkoma TRABANTS og endurkoma Grafík þar sem gestir hreinlega misstu sig í rigningunni í samnefndu lagi. Blaut og hrakin fórum við í hvítu tjöldin þar sem við fengum bót meina okkar að nánast öllu leiti. Í tjaldinu þurfti stúlka að fækka blautu fötunum og hengja þau til þerris en það gekk frekar illa. Eftir nokkuð góða stund á Lundaholum var tekinn smá rúntur um brekkuna og niður á stóra svið þar sem rassinn var tjúttaður af. Bekkjarbíll heim og skriðið upp í hjónarúm á milli Heiðdísar og Sigrúnar og bólið því veeeel hlýtt fyrir kaldan rass.
Á sunnudeginum var vaknað um hádegi þar sem ég og Sigga Dögg vorum þær einu með rænu skelltum við okkur í göngu um Eyjuna og fórum í sundið - fórum beinustu leið í pottinn og vorum þar nánast allan tímann þar sem stúlka gerði Siggu gráhærða á laginu "flottur jakki" með Ragga Bjarna. Svo voru þarna nokkrir fótboltagarpar úr IBV sem blönduðu geði við okkur. Þegar hálfur Fylkir kom svo ákváðum við að flýja pottinn og þá var köld saltlaug málið.
Við komum svo aftur upp í hús tæpum 4 tímum eftir að út var haldið og þá var bjórinn málið aftur. Svo var kjötið góða grillað og sveppasósan hans Bigga og "Þykkvabæjarsnakkið" gerðu góða hluti. Gítarinn var tekinn fram og nokkur lög spiluð áður en haldið var aftur í Dalinn þar sem kvöldvakan hófst 21 sharp. Veðrið var aðeins of gott og eftir að ég var búin að ákveða að brenna mig ekki á sömu mistökum og kvöldið áður varðandi klæðaburð endaði með því að ég þurfti að fækka fötum við brekkusönginn enda hlýtt fólk með eindæmum í kringum stúlku. Eftir að flugeldasýning, Árnahögg, brekkusöngur og blis voru búin fórum við í humarsúpuna góðu hjá Guðjóni Hjörleifs og fær sá maður 5 störnur af 5 mögulegum og kemst þar með í Mömmuflokk hvað varðar humarsúpuna. Fékk tvo bolla hjá kauða og nóg eftir.
Kvöldið og öll helgin var meiriháttar í alla staði. Húsið var brilliant og fólkið ennþá meira brill. ÉG þakka öllum sem nutu þessarar hátíðar með mér og minni á reunionið sem við munum senn halda.....ekki annað í stöðunni en að endurtaka leikinn að ári - ekki satt?
MYNDIR AF ÞESSARI SNILLD KOMA Á NÆSTUNNI
|