fimmtudagur, júlí 28

Hún á afmæli í dag!! - skál elskan



- Elskuleg Bryndís mín á stórafmæli í dag - þetta gull er 25 ára og býður stúlka í kökur og vænan skammt af aðþrengdu eiginkonu-glápi.
- Ég er hins vegar að klára vaktina og er þá rokin á þjóðhátíðina í Eyjum í fyrramálið. Við stöllur (minns, Sigga Dögg og Heiðdís Halla) ætlum okkur að komast á flugvöllinn og blásum á hótanir trukkabílstjora um að skemma helgina fyrir okkur.
- Þjóðin er engu að síður með varann á og dreifir smokkum og sleipiefni til landans. Fólk á hvorki að þurfa að fá kynsjúkdóma, ótímabæra óléttu né forleik. Besta ráðið mitt til ykkar er að sleppa höslinu, þamba bjórinn og syngja með.
|

miðvikudagur, júlí 27

Vanmetin hljómsveit



Roxette-lögin eru komin aftur í tísku. Nú hljóma þau í víðtækjunum landsins annað hvort í "slow motion" fíling eða "ofur-mixi" á Kiss FM. Mér hefur fundist þessi hljómsveit mjög "underated" - fólk er þó að ranka við sér og átta sig á því að þessi dúett er alveg að gera sig - jafnvel ennþá meira í flutningi einhverra annara. En hvað sem því líður þá nálgast helgin óðfluga og alltaf bætist við í Fjólugötumafíuna sem nú telur 9 manns! Rigningu er spáð þessa helgina og hún er bara góð þar sem það þykir vel við hæfi enda Grafík á svæðinu.

Þeir sem vilja þiggja góð ráð fyrir helgina ættu hins vegar að lesa þennan skemmtilega pistil eftir Þórð á Deiglunni.
|

þriðjudagur, júlí 26

Kellingar vs Kettlingar

Lenti í skemmtilegu atviki í gærmorgun. Kona kom til mín og sagðist vera með "kellingar" ég furðaði mig á orðavali konunar og eftir frekar misskildar samræður komst ég að því þegar ég spurði út í KONURNAR að um væri að ræða "Kettlinga". Konan var ekki AL-íslensk en við hlógum báðar.

......en pannt ekki vera köttur engu að síður - þeir eru með leiðinda "galla".
|

sunnudagur, júlí 24

Blessuð sumarprófin



Kristín María er farin að lesa fyrir sumarpróf. "The Common Assembly & The Court of Justice" eru á síðunni í dag.
Jafnvel ég grilli meðan ég glósa - Svona að hætti Bryndísar. Fari svo í "útilegu" með Heiðdísi.

Draugur jafnvel?
|

laugardagur, júlí 23

Undirbúningur & upphitun


já, fátt rætt þessa dagana en þjóðhátíð sem framundan er. Vaknaði í nótt við símtal frá Bogga Eyjabúa og heyrði bara "ÉG finn frið inni í mér!! á þjóðhátíð......!!!!". Boggi hrópaði hástöfum að núna væru þeir félagar að hita upp fyrir næstu helgi og kauði vildi ekki láta stemmninguna fara fram hjá stúlku. Verð að viðurkenna að þetta var ágætis uppvakning. En Boggi er að standa sig með myndasyrpuna af undirbúningi fyrir stórhátíðina og þeir sem vilja kíkja og sjá hvað er að gerast þessar stundirnar í Eyjum fara bara inn á myndasíðu Borgþórs þar sem drengur telur niður dagana fram að ósköpunum. Kjötsúpuboð á kanti hjá da Rookie vinnufélaga og fátt sem gæti klikkað........nema flugið ef þokukennt verður....sem við auðvitað voum að verði ekki.

Myndasyrpa Bogga: http://public.fotki.com/Boggi/undirbuningur_2005/
|

föstudagur, júlí 22

Verslunarmannahelgin 2005


Nú er vika í mestu ferðahelgi ársins og landinn iðar í skininu að komast í frí, fjölskyldan í afslöppun og unga fólkið á djammið. Margir flýja land í sólina á meðan aðrir kjósa rigningu í tjaldi með dósabjórinn í hönd. Eitt af því sem að stúlka hefur verið að brjóta heilann við undanfarna daga er það hvort hún eigi að fara á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum eða til Rimini á Ítalíu í tvær vikur?
Ef fleiri eru í sömu vandræðum þá skulum við aðeins líta á það hvernig best er að vega og meta hlutina:

Rimini á Ítalíu:
Flugtími: 3,5 klst
Heildarkostnaður: 100.000 kr með gjaldeyri (ef stúlka er sparsöm)
Kostir: Miklar líkur á mjög góðu veðri í heila 14 daga. Gott að borða og ódýrt að drekka. Afslöppun út í eitt og hægt að sofa út alla dagana. Sundlaug, sandalar, ermalausir bolir og hægt að klæða sig í sumarföt!
Gallar: Útgjöld númer eitt, tvö og þrjú. Sólbruni ef ekki er varlega farið og 2-3 dagar ónýtir í kjölfarið. Eina fólkið sem maður hittir er á aldrinum 40 + því allir hinir eru í Eyjum. Karlmennirnir þar er með plokkaðar augabrúnir og í támjóum skóm, mikið gel og í ermalausum bolum.

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum:
Flugtími: c.a. klst.
Heildarkostnaður: 40.000
Kostir: Fullt, fullt af skemmtilegu fólki og djamm úr í eitt. Tjald og útilegustemmning, góðar hljómsveitir og þá sérstaklega strákarnir í Trabant ásamt Bubba Morthens að ógleymdri indversku prinsessunni Leoncie. Á hverju strái mætti einnig bera augum gullfallega íslenska pilta í föðurlandinu góða og jafnvel íslensku ullarpeysunni líka. Íslenskt brennivín og bjór á kantinum!!
Gallar: Nenni ekki að telja þá upp þvi í mínum huga munu engir gallar verða á þessari ferð því mín hefur þegar keypt miða í flug og á svæðið.......eina sem ég finn þessari hátíð til foráttu er að hún mætti alveg vera í svona viku.

Niðurstaða þessarar pælingar var einföld........Þjóðhátíð í Eyjum í ár er málið.
|

fimmtudagur, júlí 21

Hvaða þjóðhátíðarlag er best?

Við pabbi vorum að þræta um hvaða þjóðhátíðarlag væri best. Hann og mamma eru á einu máli um að lagið "Í Vestmannaeyjum" með Magna frá árinu 2000 væri langbest. Ég er þó algjörlega ósammála þó svo það lag hafi verið fínt, það kemst ekkert lag með tærnar þangað sem þjóðhátíðarlagið 2001 "LÍfið er yndislegt" hefur hælana. Hægt er að fara inn á www.dalurinn.is og hlusta á þessi helstu. Lagið í ár er fínt en hvaða lag er BEST? Það er smá veðmál í gangi þannig að fólk verður að tjá sig um það..........
|

miðvikudagur, júlí 20

Þjóðhátíð 2005


"Ég finn frið inni í mér!! á þjóðhátíð ég upplifi lífið með þér!!"

Boggi Vökuliði sendi mér nokkrar myndir frá Dalnum sem er á fullu í að undirbúa sig fyrir komu okkar eftir rúma viku! Brynjólfur reddaði húsi og við Vökuliðar ætlum að eiga góðar stundir....ef ekki okkar bestu þar yfir Verslunarmannahelgina.
|

.....royal súkkulaðibúðingur er allra meina bót.
|

sunnudagur, júlí 17

Tókum skynsama ákvörðun í gær því við Heiðdís Halla erum að fara á þjóðhátíð. Það veður ekki leiðinlegt ef upp tekur sig sami hressleiki og í Varmahlíðinni. Ég vil líka að Sigga verði skynsöm og slái sér í för og mest vildi ég líka að hún Eyrún mín segði bara upp vinnunni sinni og kæmi líka....Bryndiamos er bara ástfangin einhvers staðar og vill sennilegast ekkert koma! :) en lagið í ár er fínt.

Fórum annars í byen í gær. - Belgíska vafflan frá Þóri var rjómi kvöldsins...
|

laugardagur, júlí 16

mæli með karmellupoppi í Bónus og Bryndísi partýljóni.
|

fimmtudagur, júlí 14

Ljúft andartak hér, var lengi leyndarmál með þér........þegar tungljósin loga í hanasal..!!

Þjóðhátíðarlagið í fyrra venst ótrúlega vel.
|

miðvikudagur, júlí 13

Kjötfars í poka og hávetur

.....eitt af því sem stúlka dreymdi þessa nóttina. Ótrúlegt hvað mig dreymir oft vetur um hásumar. Þýðir sennilegast að ég sé of köld og fráhrindandi....nei annars....og kjötfars! hvað er nú það?
Fékk gylliboð frá tveimur samnenemendum áðan, Adda og Siggu Dögg um að koma í spilakvöld sta sera....Kristín kemst ekki eins og annað fólk í venjulegri 8-5 vinnu þar sem ég vinn 12 klst í senn og annað hvort dag, kvöld eða næturvakt - í dag er það kvöldvakt og því ómögulegt að komast nema strjúka úr vinnu.
Fór annars á fótboltaleik í gær og varð næstum úti úr kulda - kannski þess vegna sem mig dreymdi veturinn....veðrið í gær var eins og í október og mér finnst að allir Íslendingar eigi að fá afslátt hjá Sumar- eða Heimsferðum í sólina ef að áfram heldur sem horfir í veðurmálum.
Sá svo He´s just not that into you þáttinn hjá Ophru áðan og þarf alveg að fara að ná mér í þessa kennslubók - já, svo magnað að geta gefið vinkonu sinni ráð varðandi strákamálin, þau eru víst hin erfiðustu mál að leysa skv einhverjum snillingi.
|

sunnudagur, júlí 10

lítið innlegg í vondan veðurdag

rakst á þetta skemmtilega quote eftir Jerry Seinfield:

"A recent survey stated that the average person's greatest fear is having to give a speech in public. Somehow this ranked even higher than death which was third on the list. So, you're telling me that at a funeral, most people would rather be the guy in the coffin than have to stand up and give a eulogy."
|

laugardagur, júlí 9

..........

Hraðaði mér heim úr vinnu í gær og gerði mig klára fyrir kvöldið. Þórlindur bauð í partý og kann sig vel. hitti mikið af hressu og skemmtilegu fólki og partýið tók kipp þegar Bryddarinn mætti hress á stæðið. Tók sig upp kjánaskapur síðan á stórhátíðinni "Sæl vinkona" og mikið var hlegið. Fékk mér nokkra Heineken bjóra og nokkra Corona. Tók að ræða málefni jómfrúarpistils míns sem senn mun birtast á Deiglunni. Tókst svo að móðga ágætis pilt á svæðinu en það var alls ekki illa meint. Smekklaus orð geta "droppað" þegar maður blandar tveimur bjórtegundum saman og einnig ef íslenskur Víking er ekki við hönd.

Stúlka varði annars kvöldi og nótt í menningunni og var ótrúlega séð (að hún hélt) og tók einkennisbúninginn með sér í bæinn því mín þurfti að mæta 6 um morguninn í FLE. Þegar ég er svo sest aftur í bílinn hjá Viktoríu og ætla að skipta um föt þá gleymdust buxurnar! How is that possible?

Sit í þokkalegu standi í Brottför í svörtum útibuxum (a la skíðabuxur) af guð má vita hverjum!!og bíð í offvæni eftir að komast út í þjónustuhlið til að geta staðið úti í þessum ósköpum! Kemst ekki úr flíspeysunni hérna inni því buxurnar eru með axlaböndum!

Klárlega versti vinnudagurinn síðan ég hóf hér störf sumarið 68.
|

föstudagur, júlí 8

þrjú emm!!

stúlka sló í gegn ásamt fleirum í co-partýinu sem fram fór í primo-húsinu miðvikudagskvöldið síðasta. þemað var bleikt og þegar kristín var búin að gefa upp alla von í að geta staðist dressquotið mundi skottan eftir bleikum kjól af moms árgerð 69! svo lekker og fín mætti fröken í parýið og við tók hress lýðurinn sem var orðin þokkalega hífaður enda minns fashionably late like "sometimes". En skv einkunnargjöf PRIMO síðunnar og síðu Hefners er stúlka með þeim hæstu í M-um og alls ekki ósátt við dóma kvöldsins. allir voru samt yndislegir og hressir, það eina sem dróg fólk niður í emmum var að svíkja þemað og syngja ekki í singstar.

annars er það nýjasta að frétta að helgin mun samanstanda af eintómum dagvöktum langt fram á mánudag - læt það þó ekki aftra mér í bæjarferð í mjög svo aðlaðandi partýboð á Hringbrautina. hef komist að ýmsu skemmtilegu undanfarið - t.d. það að örvhent fólk er stórskrítið en aðlaðandi á sinn hátt.
|

þriðjudagur, júlí 5

Sæl vinkona!!!

Ein besta ákvörðun sem stúlka hefur tekið leeeeengi var í hádeginu á föstudag þegar ég ákvað að skella mér í Varmahlíð með Bryndísi og Heiðdísi (sem hafa fengið óformlega medalíu frá mér fyrir snillingsskap og brjálæði).

Ferðin byrjaði vel og eftir að vera búnar að fara í Bónus og versla í Mosó rötuðum við ekki betur en svo aftur inn á þjóðveg 1 að við hófum ferðina á því að kynnast því hvar Reykjalundur er staðsettur! Þessu hringtorg trufluðu bílstjórann aðeins!

Tókum svo DJ-syrpu a la noi og þeir heppnu á "fóninn" voru Hildur Vala, Barði Bang gang, Villi vill, Starseilor, Trabant and many many more enda 3 klst löng ferð norður.

Helgin var hreint út sagt ótrúleg og við skemmtum okkur svo vel, með rauða tungu og gott í nös! Tókum hlaupa í skarðið með 50 nordjobb "kids" ásamt frisbí og fótbolta, rassahristi og velting, sund á Krókinn, grill, vín, bjór og gleði.

Varmahlíð að ári á STÓRHÁTÍÐINA "SÆL VINKONA" takk Þórhildur fyrir hugmyndina og allir hinir sem nutu samverustunda með okkur og þá sérstaklega eðallið úr Kennaraháskólanum ;)

Annars voru móment helgarinnar þessi:
- "Hæ Reykjalundur!"
- "Ég át kött!"
- "Það er örugglega verið að skila kettinum!"
- "Hver reyndi að drepa mig!"
- "I´m a leatherFACE" (syngist við lagið Torn og þegar hún segir: I´m all out of faith)
- "Gvenur á Eiríki!" (Syngist við lagið Gvendur á Eyrinni)
- "Liðið kom langt á eftir okkur inn, þau eru búin að fá matinn sinn, skíta og fara!!"
- " Mér er svo illt í hausnum að það er eins og mér hafi verið riðið í eyrað!"

.............and of cuz many more - þetta eru NOTA BENE einkahúmorslínur sem kannski ekki allir eru að hafa gaman að! oh well
|