Downtown 101
Jæja, þá er komið að fyrstu ferðahelgi sumarsins og vonbrigði að ekki skulu verðurguðirnir verða manni hliðhollir - hefði þakkað mikið fyrir rigninguna ef ég væri á vakt helgina. Veðurspáin gerir þetta allt mjög snúið og ég sé sjálfa mig fyrir mér blauta upp fyrir haus í einhverjum tjaldvesaling á Skógum og sú hugsun er bara alls ekkert sexy. Við Hanna settum málið í smá endurskoðun og Bryndís sagði Akureyri vera málið - jú Sálin er að spila og væri ég alveg til í að keyra 400 og eitthvað kílómetra til að sjá þá. Svo er það afmælið hjá Adda beib Gravarvogsbúa - kauði er 22 ára og býður í skúkkulaðiköku! Satt best að segja væri ég frekar til í að vera inni í köku og á öldurúsi með öl í stað þess að láta mig rigna niður með dósabjórinn. Fréttablaðið lofar víst ást og friði á Skógum og mikið af efnilegum piltum á svæðinu. Freistar. Vona bara að þeir efnilegustu verði skynsamir eins og stúlka og verði í 101 helgina og láti útilegu bíða til þjóðhátíðar enda úrvalslið með meiru þar á bæ á borð við Leoncé, Bubba og TRABANT!! trúið þið því??
Þó veit ég fyrir víst að ég fer á Duran Duran í Egilshöll í kvöld, og upp í bústað til ma og pa á sunnudaginn. Hvað skal gert á föstudag og laugardag liggur þó nokkið ljóst fyrir líka - einna helst hvaða staður verður fyrir valinu - Oliver? yes? - |

