DESPERATE STUDENT
Skellti mér í fyrstu vísó eftir áramót í gær. Ekki annað hægt en að mæta, þar sem Árnikærastikollu tók á móti okkur. Koss á kinn og hlýlegheit. Við Anna Steinunn tókum bílinn í stað rútunnar enda ávalt fashionably late í vísó. Eftir að vera búnar að strauja buxur og maka í andlitið drifum við okkur upp á Höfða. Umferðaröngþveiti tók við og ég tók tímann frá HÍ upp að gatnamótum Hringbrautar og Miklubrautar.....litar 10 mín. Við hugguðum okkur við það að með þessu móti þyrftum við ekki að hlusta á fyrirlesturinn og kæmum mátulega í veigarnar. Við tók þátturinn "Sveitamenn í borginni" take two! en síðast þegar við fórum upp á Höfða saman vorum við eins og hálfvitar að reyna að rata og það stefndi í það sama aftur. Eftir að vera búnar að fara framhjá Vífilfelli og aftur til baka komst Anna á sporið. Ég kunni ekki við annað en að senda SigguDöggformanni smess til að láta vita af því að við værum "pínu" villtar. Í sömu andrá og ég sendi komum við auga á Stórhöfða 26.......einmitt húsið! Röltum í átt að inngangi en hann var læstur.....sáum þá hliðarhurð opna og ákváðum að kíkja inn........komum við þá ekki bara inn í salinn, hlaðborð og fínerí og endalaust af bjór.........OG enginn á staðnum. Við djókuðum með það að fá okkur sæti í sófanum og gá hvort bjórinn væri ekki örugglega í lagi, á því augnabliki hringir Árnikærastikollu og spyr hvort við séum villar? NEI NEI, við erum komnar! en það er enginn hérna........ sagðist ætla að lóðsa okkur upp í hús þar sem liðið var. Fyrst var sum sé farið að skoða herlegheitin, póstmiðstöðina sjálfa og hvernig allt virkaði og síðan átti að enda þar sem við AS byrjuðum. Sniðugt.
Við AS vorum ákveðnar í að fara eftir vísindaferðina heim að læra. Hugsuðum samt hversu gaman væri að fara að djamma í svona góðu verðri ..... vorum varla búnar að sleppa orðinu þegar brjáluð snjókoma hófst og við héldum heim sælar og sáttar eftir frábæra vísó. Stúlka fór heim og hóf ritgerðarsmíð yfir Thule bjór sem smakkaðst of vel. Eftir það horfði hún á Desperate housewifes í góðum félagsskap og ekki frá því að þessir þættir séu að verða mínir uppáhalds, ásamt 24 og CSI.
Þakka Íslandspósti fyrir bestu vísó sem ég hef farið í síðan ég byrjaði í HÍ, afbragðs kynning á starfsemi, flottar auglýsingar, góðar veitingar og U2 tónleika dvd diskurinn var alveg að gera sig eftir að Árnikærastikollu var búinn að ljúka afbragðs kynningu á því hversu frábært fyrirtæki Íslandspóstur er!
nú er málið að spýta í lófana og taka fyrirlseturinn á mán með trompi og ritgerðina á þriðjudag með...........ummm, skulum bara vona að ég nái að skila :)
takk fyrir mig
|