miðvikudagur, mars 30

Horfði á Americas Next TopModel áðan...hef mjög gaman að þessu og finnst frú Dickenson ferlega krúl, minnir á kellinguna í 101 dalmatíu hundur....man ekki hvað hún heitir á ensku en minnir að hún heiti Grímhildur á íslensku. Nema hvað....hún er víst fyrsta súpermódelið og jarí jarí jarí.....af þeim sökum langaði mig að kíkja á mynd af henni á netinu til að sjá hvernig hún var þegar hún var "sæt", fór inn á ANTM síðuna..........ARG!! hefði átt að sleppa því.........."blabla was the winner of the last season" og auðvitað er komið nýtt season í BNA núna....hel*****, nú get ég hætt að horfa.....
passið ykkur á netinu.
|

Léttlyndi er gott!!

Tókuð þið eftir því hvað þau Edda Andrésdóttir & Páll Magnússon hafa verið ótrúlega léttlynd í fréttatímanum, bæði í gær og í dag.....svona slegið á létta strengi..... og mannlega viðmótið fær að njóta sín.......kannski spyrja sumir hvað veldur? Kauphækkun? Vortíminn? Bobby Fisher? Mér finnst það ekki skipta máli......Léttlyndið er gott, sama hver ástæðan er.

Annars hefur Þórhallur verið einmanna bæði í gær og aftur í dag.......spurning hvar Mrs. Hólm sé? Kannski farin til Ophru? Jú, skv DV var hún að keppast við Þórunni Lárus í þeim málum........

Annars komu inn fleiri árshátíðarmyndir frá Vöku inn á myndasíðuna í dag........þær eru frá Frk Ingu Hrefnu
|

mánudagur, mars 28

Oh well, páskafríið búið og stúlka mætir í skólann á morgun. Páskaeggið ennþá óopnað og afköstin í lærdómnum ekki mikil. Þetta frí var of stutt til þess. Átti annars ánægjulegar stundir með góðu fólki. Familían og vinir gerðu fríið skemmtilegra. Fór í bæinn á föstudaginn og svo var smá hittingur a casa mia í gærkveldi. Sleppti því að fara í bæinn með liðinu og eldaði mér pizzu og þrennan klikkaði ekki frekar en fyrri daginn, pizza með aukaost, kókteilsósa og pepsí.

Skellti inn nokkrum myndum síðan á fös og í gær. Albúmið er læst og því aðeins fyrir vini......þeir sem vilja sjá sendi mér bara meil eða sms og fá passwordið.......annars má vera að ég hendi bara viðkvæmu myndunum út og opni það....sé til.......
|

föstudagur, mars 25

langafrjádagur - dies passionis........

hvað ætli það séu margir krakkar sem halda - og fullorðnir sem héldu einu sinni - að þessi dagur væri actually laaaaangur?? Jú ég hélt það, fékk samt guðfræðslu á heimilinu (sem mamma lofaði þegar hún lét skíra mig) en samt sem áður þá fannst mér að þessi dagur hlyti að vera lengri en aðrir föstudagar. hverjum myndi ekki finnast dagurinn lengi að líða ef hann þyrfti að ganga í gegnum þær pýntingar sem elskulegur Jesú okkar þurfti að þola? Jú, það er einmitt þess vegna sem menn telja nafnið vera komið.

Í kirkjuárinu er þetta sorglegasti dagurinn. Skemmtanir eru bannaðar með öllu fram að miðnætti. En tímarnir eru að breytast. Fólk er farið að verða frjálslegra og síðasta sem ég heyrði var að það lægi fyrir frumvarp í þinginu að leyfa opnanir á þessum degi sem og páskadag. Hvers eiga t.d. þeir að gjalda sem að ekki trúa á Krist? samfélagið okkar er að verða fjölþjóðlegra og mér finnst það ekki eiga vera bundið í einhverjar reglur hvenær má vera opið og hvenær ekki vegna trúar. Það vill nefninlega svo skemmtilega til að í dag má fólk trúa á eitthvað annað eða ekki neitt án þess að verða hengt sökum þess.

annars er stúlka munaðarlaus í borginni og bíður þess að verða sótt af góðu fólki. Fjölskyldan bíður og pabbi ætlar að elda surprise í kveld. Gleðilega páska elskurnar.....
|

fimmtudagur, mars 24

skjár einn staðfesti í auglýsingum sínum að Dan kallinn mun deyja í næstu þáttum af One Tree Hill. takk fyrir þetta, snilld. nú get ég hætt að horfa. ekkert spennandi lengur.

and mr. fisher.......welcome to niceland
|

þriðjudagur, mars 22

klukkan er hlaupin kílómeter yfir miðnætti og ég sit við tölvuna og lakka á mer neglurnar. rýni í glósur í opinberri stefnumótun og pæli í markaðságöllum í menntakerfinu. Páskáfríðið gengur í garð á morgun og fögnum við því með bæjarferð í ódýran bjór. mamma spyr hvort ég ætli ekki að vera heima um páskana en ég segist þurfa að vera hérna og lesa. og meina það líka. sagðist koma heim á páskadag en mun líklegast eyða fleiri stundum með familíunni en á þeim herrans degi. grátbað um að fá kalkún og stöffing þessa páskana vegna þess að ég er komin með leið á reyktu og söltu kjöti sem skilur bara eftir þorsta fram á næsta dag. ég er heldur ekkert sérlega hrifin af rauðu kjöri, áttaði mig á því fyrir nokkrum árum en var viss um að það væri vitleysa bara af því að pabbi sagði það. en það staðfestis hér með að ég er ekki hrifin af rauðu kjöti, nema það sé sérlega vel matreitt og marinerað.
til í að fá páskaegg númer 3 frá Nóa. kaupi það á morgun. ét það svo á fimmtudagsmorguninn. vil ekki skemmta hungrið í kalkúninn á páskadag með súkkulaðiáti.

"kæri þjónustufulltrúi bréfið" hitti líka í mark í dag þó svo ég hefði sagt við hann að mér þætti ekki gaman að senda honum póst. fékk aukaheimild og sef þessa nóttina. takk kæri minn.
|

mánudagur, mars 21

Myndir komnar frá árshátíðinni:
http://public.fotki.com/kb80
|

Magnað!

Fyrst sæki ég um að komast að í þættinum You are what you eat og kemst þá að því að matarræðið er snarbilað, en eftir að kellingin fer þá held ég samt bara áfram að éta og fitna meira. Þá fer ég í megrunarkeppnina The Biggest Loser og næ af mér nokkrum kílóum. Nú til að fá final touchið á þetta þá fer ég í The Swan og fer í nokkrar lýtaaðgerðir og fitusog, ekki veitir af.. en í lokaþættinum þá kemst ég ekki áfram í fegurðarsamkeppni the Swan, þannig að þetta hefur ekki virkað alveg. Þá fer ég í Extreme Makeover og læt taka mig ærlega í gegn, skipti bara um andlit og sýg alla fitu úr líkamanum. Þá er ég heldur betur orðin flott og fer í Americas Next Top Model þáttinn og geri gott þar.. en tapa.

Nú er ég orðin soldið fúl og einmana, á engan kall nebblega. Best að fara í Bachelorette og ná mér í einn ríkan og myndarlegan. Geri það, en þegar þáttaröðin og það er búið, vantar einhverja spennu í sambandið, þannig að við förum í Temptation Island... en þar endar það með að við hættum saman því við héldum bæði framhjá. Þá langar mig bara að vera dáldið sjálfstæð og verða rík.. Þannig að ég fer í Survivor, þrauka alveg í 36 daga en lendi í 3. sæti ohhh ég fæ ekki einu sinni 100 þús dollara.. fer heim, alveg í rusli.

En ég er ennþá sæt eftir lýtaaðgerðirnar og sílíkonbrjóstin hanga ennþá uppi.. og þar sem mig langar aftur í kærasta, þá skrái ég mig í Djúpu laugina.. næ mér þar í einhvern lúða sem býr í ljótri íbúð í Fellunum og er frekar subbulegur. En það er allt í lagi, ég hringi bara í vini mína í Queer eye for the Straight Guy og þeir koma og henda manninum mínum í klippingu og kaupa ný föt á hann, rí-dekkorreita svo íbúðina, allt voða flott og hann biður mig um að giftast sér í lok þáttarins, sem ég geri.

Við förum þá auðvitað með brúðkaupið í Brúðkaupsþáttinn Já og vinnum svo ferð í Karabíska hafið, voða rómó. En á skemmtiferðaskipinu þá verð ég ólétt.. eignast svo krakka og eftir 2 ár er hann farinn að stjórna öllu, þannig að ég hringi í The Nanny og fæ hana til að kenna okkur að ala upp krakkann og láta hann ekki ráða öllu.

Nú er allt komið í drasl aftur.. Þannig að ég hringi bara í Heiðar vin minn Snyrti og fæ hann að koma með þáttinn Allt í drasli og taka til... vá hvað það verður allt fínt hjá okkur! Þá er nú kominn tími til að hringja í Völu og við komum í Innlit Útlit, en við þurfum svo að stækka við okkur því að það er annað barn á leiðinni, þannig að við förum bara með íbúðina í þáttinn Allt undir einu þaki, seljum hana og kaupum stærri.

Árin líða og þetta endar allt með því að ég er búin að skilja við kallinn sem hélt framhjá mér, lýtaaðgerðirnar sem voru gerðar fyrir 15 árum komar í klessu, ég er ljót, feit, einstæð 2ja barna móðir sem á ekki neitt.. þannig að ég fer bara í Fólk með Sirrý og væli yfir þessu öllu saman!

- þakka Petru Rós fyrir að senda mér þennan skemmtilega pistil -
|

sunnudagur, mars 20

Árshátíðin í gær var of skemmtileg. Við Boggi sýndum hvers við erum megnug þegar við unnum keppnina miklu. Kristín var ekki lengi að renna banananum upp buxnaskálmina, taka hann út um klaufina, opn´ann og bíta. Gaman. Maturinn var góður, líka cosmópolitan í pre-partýinu hjá Hrefnu & Júrólagið hitti í mark hjá flestum. Áfram Selma!

Stúlka vaknaði annars mjög hress, íbúðin þarfnast tiltektar og lesturinn bíður......og bíður.....og bíður....... Stefni á að hefja ritgerðarsmíð í dag svo Svanurinn minn kvarti ekki aftur um að fá bara 3 ritgerðaruppköst þetta skiptið.

Aldrei þessu vant þá hrjáir mig ekki eftirdrykkjuþunglyndið í dag. Nei, ég var ekki að fá útborgað, er ekki að fara til útlanda (fyrr en í næsta mánuði) og ég er ekki komin með kærasta......skrítið.
|

föstudagur, mars 18

Fallegir pakkar.............en tómir!

Las nokkuð merkilega bakþanka eftir Jón Gnarr um daginn. Sá maður er sérlega mikið méraðskapigaur. Hann var með pælingar um átröskun. Alvarlegur sjúkdómur sem ég ætla ekkert að fara að rekja sérstaklega. Ég kýs ekki að kalla mig feminista enda er alltaf verið að þræta um hvað felst í orðinu. Ég er ekki á móti klámi (professional) og ekki heldur nöktum kven- og karl- líkömum. Það er bara fallegt. En það merkilega er samt sem áður að alltaf þegar maður sér naktan líkama, þá er hann alltaf næstum því eða alveg FULLKOMINN! Það fer ekki framhjá neinum í dag hvað það er mikil líkamsdýrkun í gangi. Enda gleðst ég yfir því með eindæmum þegar ég horfi á Americas next top model, að frk Toccara skuli vera þarna í öllu sínu veldi.

Önnur pæling hjá Jóni er mjög "solid", en það er að mönnum er meira umhugað um hvernig þeir líta út að utan heldur en hvernig þeim líður að innan. Yfirborðsmennskan er að fara með fólk. Og svo spyr hann......og ég líka......HVAÐ GLEÐUR ÞAÐ AÐ FÁ FALLEGAN PAKKA EF AÐ ÞAÐ ER EKKERT Í HONUM?

Útlitið er eitthvað sem að við tökum eftir fyrst í fari fólks.....það laðar mann að viðkomandi.....en ef að komið er að tómum kofanum þá skiptir þetta blessaða útlit og andlit ekki neinu máli. Hversu mikið af fólki er t.d. í Séð & Heyrt bara af því að það lúkkar? Mr. Gnarr er á því að við eigum að hætta að hampa fólki sem hefur ekkert fram að færa annað en líkamlegt útlit.

Dæmi nú hver fyrir sig.........
|

miðvikudagur, mars 16

Eru til þunglyndir sálfræðingar?

smá háskólapæling........
|

þriðjudagur, mars 15

Hamingjufærsla:

Hef sótt um í Háskólann í Bologna á Ítalíu fyrir næstu vorönn. Stefni á að dvelja þar í sex mánuði.
Umsóknarfrestur rann út í dag.
Hlakka til.....
|

mánudagur, mars 14

Háskólapæling dagsins:
......fréttir berast um hafís norðan við landið sem er svo sem ekkert að gerast í fyrsta skipti. Þetta er þó aumingjans Grímseyingum til trafala og margir sennilegast hræddir um að ísbjörn muni ganga í land aftur eins og gerðist á 6.áratugnum. Á sama tíma eru jöklar Himalayafjalla að bráðna sem á eftir að hafa gríðarlegar afleiðingar í för með sér. Flóð og mikill vatnsskortur mun hrjá hundruði milljóna manna ef ekki verður snúið við þróuninni sem nú er að eiga sér stað alls staðar í heiminum. Vegna þessara blessuðu gróðurhúsaáhrifa hefur hitastigið í heiminum verið að hækka með hverju árinu. Las það í janúar á forsíðu Fréttablaðsins að skv nýjustu rannsóknum bla bla stofnunarinnar þá höfum við 10 ár til þess að snúa þessari þróun við........ef ekki þá mun verða óbúanlegt á Íslandi í framtíðinni. Ástæðan er sú að með hækkun hitastigs í heiminum þá kann golfstraumurinn að taka aðra stefnu en fyrir þá sem ekki vita þá er það hann sem sér um að koma hlýju lofti að blessaða Íslandi. Ef þetta gerist, sem vísindamenn telja mjög líklegt, þá mun taka við ísöld. (já ísöld með hækkandi hitastigi)


Allir sofa værum svefni varðandi þessi alvarlegu vandamál sem að heiminum steðja.....aldrei heyri ég neitt um það hvað sé hægt að gera til þess að sporna gegn þessu.....það verður líklegast að 10 árum liðnum þegar allt er orðið of seint, að menn fara að naga sig í handabökin............á þeim tíma sem fréttir bárust um hugsanlegan vatnsskort í Asíu hugsuðu sjálfsagt sumir hversu heppin við værum hérna á Íslandi, nóg vatn til handa okkur.......en hvers virði er það þegar það verður frosið í pípunum?
|

miðvikudagur, mars 9

V-andamál
Væri til í að hverfa aftur í tímann áður en tæknin kom með ljóshraða og breytti öllu. Hvað var fólk að gera áður en tölvur, internet og gsm símar komu á markað?? Ef ég væri ekki með tölvu og internet þá væru afköstin í lestri töluverð. Þetta er farið að trufla og ég fer í viku verkfall frá þessu bloggi, msn og interneti. Sleppi því að tengja internet-kapalinn við tölvuna og reyni í staðinn að LESA. Sjáum hvort það takist. Ef ekki þá er ég að spá í að koma af stað meðferðarheimili like Stella og taka á móti tölvu- og internetfíklum. Svo lekkert.

Þeir sem telja sig þurfa á meðferð að halda í þessum málum hafið samband......
|

þriðjudagur, mars 8

V-DAGURINN
Við Anna Steinunn skelltum okkur í Óperuna í kvöld á V-dagsviðburðinn. Byjuðum á því að fara yfir á rauðu hjá Stjórnarráðinu upp Hverfisgötuna og lentum beint á eftir forsetanum sjálfum. Þegar við komum svo inn í Óperuna lá við rauðadregilspósum vegna þess að verið var að mynda Ólaf forseta á sama tíma og við örkuðum inn eftir kalli. Gripum vínglas og náðum að taka einn sopa áður en við vorum reknar inn í sal og ekkert glas þar inn.....damn it! en bara þriðjudagskvöld. Salurinn var bókstaflega troðinn og loftræstingin í verkfalli. Taldi mig svo vera fara að hlægja af píkusögum en svo var aldeilis ekki. Jú, hún Eve frumkvöðull var fyndin með eindæmum en aðrar sögur það átakanlegar að Kristín átti bágt með sig. Stúlknakór Reykjavíkur áttu atriði kvöldsins undir stjórn Margrétar Pálmadóttur og tóku 4 eða 5 lög sem bræddu mitt litla hjárta. Varpað var upp staðreyndum varðandi ofbeldi gegn konum og þótti mér sorglegt að þeir 17 menn sem árið 2004 voru kærðir fyrir kynferðisbrot, en í heildina voru tæplega 300 sem frömdu slíkt, fengu tveir af þeim dóm, sem voru 2 ár. Einnig að fleiri konur láta lífið eða missa heilsuna vegna ofbeldis sem í flestum tilfellum eru framin af þeim sem þær þekkja vel, heldur en þær sem deyja vegna krabbameins, malaríu, umferðarslyss eða reykinga. Ótrúlegt.
Ung kona gerðist það hugrökk að fara upp á svið og lýsti reynslu sinni eftir að henni hafði verið nauðgað......þar kom fram hvað kerfið og ferlið eftir slíkt ofbeldi getur verið gallað. Ungir og þekktir karlmenn í Íslensku þjóðfélagi stóðu upp og sögðu setningar eins og "konur eiga að njóta kynlífs" og "konur eiga að geta notið leikfanga......en þær eiga ekki að vera slíkt", voru þar menn eins og Bjarni Benediktsson, Gísli Marteinn, Ágúst Ólafur og Egill Helgason sem stóðu upp og tóku sér málstað kvenna. Stórt klapp fyrir þeim. Ellen Kristjáns tók tvö þjóðlög, Igor eitt rapplag og Lára eitt rólegt á píanó. Ung stúlka tók dans ársins sem var snilld og Ingibjörg Sólrún las átakanlega píkusögu.
Sýnt var myndband frá Kenýu þar sem barist er fyrir umskurði kvenna og hefur kona þar í landi að nafni Agnes bjargað þúsundum kvenna frá þeim hryllingi.
Ef þessi dagur er ekki eitt besta framtakið í heiminum sem einstaklingur hefur staðið að þá veit ég ekki hvað.
Þær stúlkur sem staðið hafa að þessum degi þau 4 ár sem hann hefur verið haldinn eiga líka hrós skilið, þær eru m.a. Þórey Vilhjálmsdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir ofl.
Takk fyrir mig í kvöld.....án efa einn besti viðburður sem ég hef farið á í laaaangan tíma.
|

mánudagur, mars 7

Tók daginn snemma með því að mæta í próf at 08.30, þar sem lagðar voru fyrir 20 stk spurninga sem allar vógu 5%. Vil helst ekkert segja með gang mála þessa prófs en ég var næst seinust út úr prófinu. Sá sem var lengur en ég var álitlegi strákurinn á 2.ári.......nei, ég hékk ekki svona lengi í prófinu vegna þess.......kannski vorum við bara bæði svona "vel" lesin......

...en hafa einhverjir fleiri tekið efitr því hvað þeir grunuðu í CSI þáttunum verða skrítnir um leið og það er ljóst að þeir eru hinir seku?? Bara svona pæling hjá mér. Þetta eru mínir uppáhaldþættir og þetta er farið að pirra mig.
|

sunnudagur, mars 6

Akademíudinnerinn var magnaður. Tók nokkrar myndir á "gæða" vélina og skellti þeim undir "Vökumyndir". Var mjög settleg á Borginni og bragðaði ekki bakkus enda nóg að gera á laugardaginn. Svaf ekkert þá nótt vegna útvarpsþáttar sem stúlka átti að mæta í. Hann gekk þó vonum framar og var bara nokkuð skemmtilegur. Heimilislegt spjall og allir viðmælendur lausir við árásir og leiðindakomment. Missti svo af tjútti gærkveldsins vegna þess að minns fór heim að lesa enda próf í hryðjuverkum í fyrramálið.....be aware.
|

föstudagur, mars 4

Lið stjórnmálafræðinnar vann íslenskuna í ræðukeppninni í gær.Voru með yfirburðum betri en samt munaði ekki nema 17,5 stigum. Sumar ræðurnar voru átakanlegri en aðrar en stjórnmálafræðin átti að mæla GEGN því að gelda kynferðisafbrotamenn. Lá við að ég tæki einn Lloyd Christmas á þetta, þrýsti báðum vísifingrum upp að eyrunum og lalalalala..........Svo svakaleg var ræða Byssunar sem var einmitt valinn ræðumaður kvöldsins. Grófleg misnotkun Áka pabba var ekki fyrir viðkvæmar sálir.

Svo Stúdentakjallarinn þar sem m.a. eplaormarnir góðu komu til tals.......Adda finnst þetta alltaf jafn fyndið........já þetta er svona eftiráfyndið.

Í kvöld er svo Akademíu-dinner Vöku, fullt af árshátíðum og taumlaus gleði. Minns stoppar þó stutt enda landsþing og próf á mánudaginn.

Alltílæbless
|

miðvikudagur, mars 2

Fór í Flensborg í morgun á stjórnmálafund ásamt mínum ágæta þingmanni, Gunna Örlygs. Vakningadagar eru í algleymingi og er svona fundur árlegur viðburður. Skólinn var allur í svötum ruslapoka og skreyttur sem draugahús.... magnað! Þegar komið var upp tröppurnar tók á móti okkur stór spegill með blóðáletruninni “I know what you did last summer”. Við ungliðar vorum þarna til að kynna hreyfingar okkar ásamt þingmönnum. Allir voru hressir en meðal okkar voru Sigurður Kári, Birkir, Steingrímur J og Mörður. Spurt var úr sal varðandi íraksstríðið, samræmd stúdentspróf, áfengislöggjöfina, reykingabannið og fleira skemmtilegt. Þetta endaði svo allt saman í Idol söngvakeppni og klárlega eru sönghæfileikar þessara manna misjafnir......nefni engin nöfn.

Gerðist svo ótrúlega dugleg og hljóp út í Þrekhús, tók lyftingarnar og hljóp til baka. Tók eftir því að strákar mæta þarna og hjóla bara til þess að horfa á Sýn og fótboltann. Þetta er ágætis lausn fyrir þá sem eru ekki með áskrift og geri ég þetta hér með að hagnýta húsáðinu mínu þessa vikuna!

Á morgun er það svo Borgarholtsskóli sem vann svo skemmtilega Gettu betur í kvöld. Þar verða teknar umræður um styttingu stúdentsprófs, samræmd framhaldsskólapróf og fasteignaverð sem hækkar....og hækkar....og hækkar. Svo hvet ég alla til þess að mæta á ræðukeppnina annað kvöld þar sem stjórnmálafræðin ætlar að taka íslenskuna í ra**gat**, en þetta verður forvitnilegt þar sem stjórnmálafræðin á að mæla með því að það eigi að gelda kynferðisglæpamenn. Eftir það er það Stúdentakjallarinn.

A piu tardi
|

þriðjudagur, mars 1

Horfði á mynd á sunnudagskvöldið, NOTEBOOK, það var búið að segja mér að ég yrði að horfa á hana með einhverjum sætum strák, þetta væri sko þannig mynd............... sem betur fer var ég ein, ég skal sko segja ykkur að venjulega grenja ég ekki yfir mynd, en tárin kláruðust. Þetta hefði ekki verið gaman með sætan gæja við hliðina, þá hefði ég þurft að gera eins og forðum...taka eitt WC á þetta bara........var 15 ára og að byrja með æskuástinni. Ákváðum að horfa á "when a man loves a woman" einmitt mynd sem ég grenja yfir, en vegna þess að ég var með gæjann mér við hlið þá fór ég á klósettið og grenjaði þar! Hversu hallærislegt er það?
|