He´s just NOT that into you!
Horfði á frekar skemmtilegan þátt með Ophru áðan. Verið að ræða það þegar fólk er að deita og svo heyrist ekkert í hinum aðilanum. Smá sms og svo lítið meira en það. Kvenmenn eiga (að ég held) og karlmenn líka eflaust, svo erfitt með að sjá skilaboðin, þið vitið, þessi leyndu sem segja ÉG HEF EKKI ÁHUGA Á ÞÉR. En við erum svo mósjonal og viljum helst engan særa og vonum því að málið drepist sem fyrst. En það sem við erum ekki að átta okkur á, að í stað þess að segja bara, "hey, sorrý, þú ert bara ALLS EKKI, Jude Law eða Angelínu Jolie týpan sem ég er að leita mér að" (shallow ég veit) og kannski valda smá vonbrigðum....eða miklum, í smá tíma, þá er verið að draga fólk á asnaeyrunum, láta það halda allt milli himins og jarðar......"sagði ég eitthvað vitlaust? "Var hann/hún ekki að fíla veiðivatnið mitt?" Það er ótrúlega leiðinlegt að segja við fólk "ég hef bara ekki áhuga á þér" og maður vill ekki vera þessi leiðinlegi sem særir, en stundum þarf þess bara, það er ágætt að fólk tali bara hreint út og taki allan vafa í burtu, svo hægt sé að leita á ný mið sem fyrst aftur :) Er það ekki málið?
Svo var önnur ansi skemmtileg pæling í þættinum áðan ....... halda tveimur eða fleiri heitum í einu ef ske skyldi að eitthvað myndi klikka......svona varadekk? Hvenig ætli það sé að vera annað eða þriðja val........virkar svoleiðs dæmi alveg?
Svo eru sumir sem hafa afskaplega gaman að svona leikjum........."núna er ég búin að tala við hann/hana og næst er komið að honum/henni að tala við mig" Hvað er það? Af hverju talar fólk ekki bara við hvort annað eins og því langar og sér svo bara til hvernig fer með hinn aðilann?
Þetta er svona háskólapælingar.......
|