mánudagur, desember 27

Hef það of gott í kotinu í Grindó. Veðrið úti hvetur mig til þess að fara ekki úr náttfötunum né rúminu. Djammaði ekkert í gær og þakka fyrir það á þessari stundu að vera laus við slappleika og timburmenn. Mikið búin að horfa á sjónvarpið og video og er efni meðal annars þetta:

How to loose a guy in 10 days (ótrúlega skemmtileg) *** Horfði á hana í 3ja skiptið
Blindsker - bjóst við meiru í þessari mynd **
Pay it forward (grát grát) *** annað skiptið
A walk to remamber (grát grát) **
Christmas vacation (fyndnast í heimi) **** 20 skiptið, must að horfa á jólunum
Wall Street *
Kill Bill 2 ****
Reserviour Dogs ** (spes)
Ken Park (sjokk sjokk) *

Ætla að vindast upp í rúm aftur með lúku af konfekti og taka enn eina Tarentino myndina.......Pulp Fiction


|

föstudagur, desember 24

Mínar bestu óskir til ykkar allra um

Gleðileg jól
og
farsælt komandi ár
Þakka ykkur sem ég hef notið samveru með á árinu kærlega þær stundir og vona svo sannarlega að jólin og áramótin verði ykkur öllum ánægjuleg
Guð blessi ykkur börnin mín
Þess óskar
Kristín María
|

miðvikudagur, desember 22

Grindjánaborgin rokkar:

Spennufall mikið í gær þegar ég gekk út úr Aðalbyggingu Háskóla Íslands eftir að hafa lokið við síðasta prófið á 1 og 1/2 klst. Tjattaði við Hilla a.k.a Mr Thule sem var búin með prófið rétt á undan mér. Gaman að segja frá því að við sátum hlið við hlið í prófinu. Eitthvað sem gerist aldrei í Háskólanum. Gamla yfirsetu kellan hefur eitthvað misreiknað sig. Guðfræðineminn sat fyrir aftan mig, hefði með réttu átt að sitja þar sem Himar sat.

Hittumst í koti Kristínar í gær, drukkum, hlustuðum á tónlist og rifumst um hvaða lag ætti að spila. Fórum svo í Sjallakofann á nesinu og tjúttuðum með Sálfræðinni og Hagfræðinni. Fólk hreinlega missti sig í drykkjunni - mikill losti og gredda ríkti á svæðinu. Fólk úti um allt slefandi upp í hvort annað. Skemmtilegt. Ég tók hins vegar "netta" salsasveiflu með Salsakónginum sjálfum............herra Conclusion........Ipod owner með meiru.

Þakka hér með stjórn Politicu fyrir skemmtilegt partý. Hefði viljað sjá meira af þeim ágætu krökkum á dansgólfinu.

Ég er hins vegar komin heim í kotið í Grindavík og ætla að slaka á. Skreyta jólatréð, sjóða skötu, hengja upp útiseríurnar, pakka inn pökkum og skrifa á jólakort fyrir familíuna :)

Later



|

laugardagur, desember 18

Þegar það sem maður vill síst í lífinu verður óskhyggja..............

Fór með Sigga bró í Kringluna í dag.........eða öllu heldur á Kringlusvæðið. Umferðin og traffíkin var þvílík að nett geðveiki ríkti á svæðinu. Bílar alls staðar í öllum krókum og kimum, uppi á gangstéttum og á miðjum götum. Við fórum niður............á stæðin sem eru yfirbyggð.......nýja þið vitið?? Vorum í hálftíma minnsta kosti að komast hálfan hringinn þarna niðri án þess þó að fá stæði. Allir að stopp og bíða......tékka hvort að þessi sé ekki örugglega að fara....nei nei. Afi gamli þarna gaf okkur Sigga svo falskar vonir.....var eitthvað að dútla við bílinn sinn eins og hann væri að fara og labbaði svo í burtu!! MAN!!

Keyrðum svo aðeins lengra.........tvö laus stæði!!! Jei.......fyrir fatlaða. Á þessum tíma óskuðum við þess já (en Siggi bróðir sagði það samt upphátt) !! ljótt að segja það en........

við gáfumst upp og slepptum Kringlugeðveikinni og keyrðum í burtu.
|

föstudagur, desember 17

DORRIT ER KONAN

Las á bloggiBryndíar þegar við fórum á Bessastaði...... henni líkaði einstaklega vel við Dorrit Moussaieff. Ég kann líka ótrúlega vel við hana. Svo vel að í nótt dreymdi ég að við værum ótrúlega góðar vinkonur og mér fannst það vera í mínum verkahring að hrósa henni og segja við hana hvað öllum fyndist hún æðisleg. Það var ótrúlegt svona "vinkonu-konexjón"

Svo vakna ég eftir Dorrit-drauminn og fer og næ í Fréttablaðið (sama rútínan hjá Kristínu) og hver blasir þá við? Nýja vinkonan Dorrit!! Svona smekkleg framan á Birtu. Þetta líf....ótrúlegt.

Langaði að deila þessu með múganum. Kannski að fleiri hafi upplifað svipað?
|

fimmtudagur, desember 16

Á Þorláksmessu klessti Svanurinn á steininn..........bleh!

Sá sem fattar þessa setningu fær verðlaun. P.S. fólkið sem er með mér í fræðinni mun eiginlega bara koma til með að fatta.

Þetta lýsir því hvað ég er orðin súr á þessum endalausa lestri. Búin að rústa bakinu á þessum vonlausa eldhússtól sem ég sit alltaf á!! Fór of lamdi hel***** tu***** á efri hæðinni sem bara getur ekki hætt að færa til húsgögn á næturna!! Hvað er að þessu djö*******s pakki??

Var ég búin að minnast á það hvað ég hef gaman af lífinu þessar stundirnar?? Nei hélt ekki. Þá ætlaði ég nebbla að leiðrétta þann misskilning :)

ha? ég á túr?

da sidste próf er 21.desember. Þá verður skemmtilegra.

Good luck ya all!
|

mánudagur, desember 13

Búum til betri heim.......

Veit ekki hvort það séu margir þarna úti sem höfðu það að markmiði þegar þeir voru 5 ára að bjarga Afríku frá hungursneyð. Ég ætlaði a.m.k að gera það. Stefni ennþá að því einvern daginn.

Svo ánægð með RÁS 2, næstum eina útvarpsstöðin sem spilar frábæra lagið sem kom út´1985, "Sameinumst hjálpum þeim". Lagið var spilað of oft í mínu koti (ég var dj-inn þar á bæ) að nálin brann yfir hvað eftir annað.

En án þess að ætla að fara að vera væmin þá finnst mér þetta svo magnað lag. Fæ alltaf gæsabólur í hvert sinn sem það heyrist. Finnst það líka í góðu lagi að á tímum sem þessum þá reynum við að sýna samkennd. Fyllum baukinn góða og þökkum fyrir það að vera hluti af einni ríkustu þjóð heims............(eins og segir í laginu: Gleymd´ekki þínum minnsta bróður, þó höf og álfur skilji að......)

.....en því miður er fólk á klakanum sem á hvergi höfði sínu að halla. Það er einmitt aftur á þessum tímum sem við eigum að taka kaupmanninn í Gravarvoginum okkur til fyrirmyndar. Hann ætlar að vera með verslun sína opna og elda fyrir þá sem eiga í engin hús að vernda á jólunum. Ekki það að við eigum að kaupa verslun og hafa hana opna.........bara eitthvað annað sem kannski gleður lítil og stór hjörtu.

Nú ef að einhver sem les þetta er í sömu vandræðum þá má hann alveg koma heim til mín og fá sér að snæða............ef hann borðar reykt svínakjört :)


|

föstudagur, desember 10

TV-ið

Ég horfi á sjónvarpið þegar ég á síst að vera að því. Horfði á endursýningu á Piparjónkunni í gærkveldi og greip hvað eftir annað fyrir andlitið vegna þess að ég skammaðist mín svo fyrir hennar hönd. Hver gefur BLEIKA INNISKÓ á fyrsta stefnumótinu

Prentun stendur yfir í Odda á BNA glósum........og ég blogga á meðan ég bíð. Ég er alveg að komast á lagið með að nýta tímann minn............í óþarflegustu hluti greinilega!!
|

þriðjudagur, desember 7

Do they know it´s terrible??

Fyrir þá sem ekki vissu þá hefur lagið "Do they know it´s christmas?" verið mitt uppáhalds jólalag í gegnum tíðina, enda ég jólabarn með meiru. Í ár eru 20 ár síðan það lag kom út sem aðallag styrktartónleika sem bæði voru haldnir í BNA og Bretlandi á sínum tíma. BAND-AID kölluðu þeir sig og í fremstu víglínu þá voru Bono í U2 og Bob Geldof. Það er svolítið síðan ég heyrði að það ætti að gera afmælisútgáfu . Nú er sú útgáfa komin í spilun og Guð minn góður!! Ég gæti grátið þegar ég hlusta á þessa ógeðsútgáfu enda tekst þeim ekkert annað en að eyðileggja lagið!

Skil ekkert í Bono að hafa sætt sig við að vera með í því að rústa laginu....en auðvitað er þetta gert með góðgerðarvilja í huga og allir vilja gefa sitt í þetta. Lagið er samt ljótt.

......að lokum þá ætla ég að koma með smá fróðleiksmola, farið að finnast það svo ótrúlega skemmtilegt: Eftir styrktartónleika BAND-AID árið 1984 þá samsvaraði upphæðin sem safnað var bæði í BNA og Bretlandi upphæð sem nægði til þess að greiða niður skuldir Eþíópíu í einn dag, svo skuldugt var landið. En auðvitað voru peningarnir notaðir í annað, eins og að fæða og klæða fólkið þar á bæ.

P.S: Munið svo eftir rauða bauknum og gíróseðlinum fyrir aumingjans börnin í Afríku. Sleppið svona eins og einni bjórkippu og þá er það komið :)

gleðilegan próflestur!
|

laugardagur, desember 4

Lærdómsgeðveiki hf.

Ég er búin að sitja hérna í allan dag á ómögurlegasta stól heims lesandi svo magnaða bók um bandarísk stjórnmál. Vaknaði upp úr hádegi vegna þess að ég var staðráðin í því í nótt þegar ég ákvað að leggjast að ég myndi ekki láta klukkuna vekja mig. Ætlaði að gera tilraun. Sjá hversu langan tíma það tæki áður en ég myndi vakna af sjálfsdáðum. 9 tímar! Hvorki meira né minna. Svo úthvíld og fín.

En á meðan ég er búin að renna í gegnum bókina um alla pólitísku geðveikina í BNA þá hef ég rekist á marga fróðlega punkta. Á hverri blaðsíðu er dálkur í horni sem segir "DID YOU KNOW..." svo kemur eitthvað sniðugt. Þetta er svo spennandi og það ættu ALLAR námsbækur að hafa svona mola.

Á bls. 409 í útgáfunni frá 98-99 (gefin út árlega þessi doðrantur vegna þess hve mikið er að gerast í pólitíkinni og svonna) þá segir:

Did you know that the expression "O.K", which is used worldwide, was coined in the presidential campaign of 1840 in reference to Martin Van Buren, who was kalled "Old Kinderhook" after his birthplace? His New York supporters formed the "O.K." club and shouted the expression at political rallies and parades.

Magnað!
|

miðvikudagur, desember 1

Til hamingju..............
....................með daginn kæru landar. Fyrir þá sem ekki vita þá er 1.des fullveldisdagur okkar. Það gerðist jú árið 1918. Ætla ekki að fara að tíunda það hér nákvæmlega enda er ég búin að vera að skrifa ritgerð hjá honum Svan um þessi mál og þennan tíma.

Þegar við fengum fullt lýðræði 1944 varð dagurinn 17.júní en við stúdentar höfum ávalt haldið 1.des hátíðlegan. Farið prúðbúin með krans að leiði Jóns Sigurðssonar og heyrt á ræðuhöld í hátíðarsal HÍ.

Svo fór stúlka í fyrsta sinn á Bessastaði. Hitti forsetann og Dorrit ásamt Vigdísi Finnboga. Nokkuð skemmtilegt hús þar á ferð. 3 hæðir sem hægt er að virða fyrir sér. Bókasafn þar sem hægt var að glugga í bækur eins og Vídalíns postulu, herlækninn, Bandalag gegn bakkusi og margar fleiri sniðugar.

Kampavínið fengum við en engar veitingar. Kannski sparnarður hjá ríkinu eða þá hafa marsípan-kransa-mynslurnar ekki fallið stúdentum í geð fyrri ár.

Þakka samt sem áður boðið, þetta var mér sönn ánægja.
|