Þú þarft ekki að eiga allt...........(húsráð Kristínar, part I)
Sem námsmaður með takmarkað fjármagn hefur mér tekist að nýta hluti sem eru kannski ekki alveg gerðir fyrir ákveðna hluti til ýmis brúks. Ég á ekki samlokugrill, en finnst grillaðar saml0kur með miklum og sterkum osti ótrúlega góðar. Þá rak ég augun í vöfflujárnið, sem Siggi bróðir gaf mér á góðum degi í fyrra. Það er sniðugt fyrir einbúa eins og mig. Það tekur bara eina samloku sem er ágætt og hún er tilbúin á svona 20 sek, ef að vöfflujárnið er vel heitt. Snilldarbragð sem ég mæli með.
Svo er annað sem mér hefur tekist að nýta mér. Fyrir þá sem ekki þekkja "Skype" þá er það tölvu-forrit sem gefur fólki kost á að tala saman eins og í gegnum síma, í gegnum tölvuna, FRÍTT. Til þess að geta nýtt sér þessa tækni þarf tölvu-headsett, svona eins og þeir sem vinna við símavörslu eru með. En það er samt hægt að redda sér án þess að kaupa tölvuheadsett sem kostar sitt. Náið bara í venjulegt headsett og setjið í samband á bak við tölvuna.(fyrir þá sem eru jafn gamaldags og ég með PC ennþá)
Það er nefninlega hægt að snakka í gegn um það. Svo sniðugt og skemmtilegt.
Verði ykkur að góðu og góða skemmtun.
|

