laugardagur, október 30

Læridagur í dag.........

Við Addi erum hérna að hamast við að klára ritgerðina okkar áður en við skundum í ammli til Önnu Völu. Í því tilefni kemur mynd:

Addi eins og draugur og ég að bora í nefið. Skemmtilegt.


|

föstudagur, október 29

Omar & egg (eða nit?)

Stúlkan er komin í hollustuna........það því marki sem hún nær. Fór með moms að versla í bónus í síðustu viku. Eftir að hafa fyllt körfuna af hollum mat þá ákvað ég rétt áður en ég fór að borga að kippa einum poka af þurrkuðum eplum með mér. Finnst þau góð.

Í gærkveldi þegar sykurþörfin var allveg að fara með mig hugsaði ég til eplanna minna uppi í skáp. Reif pokann úr skápnum og opnaði hann. Hélt áfram að pikka á tölvuna og borðaði eplin úr pokanum hugsunarlaust.

Svooooooo í morgun áður en ég skaust út úr dyrunum, til þess að fara í tíma, hugsaði ég með mér "það væri nú gott að taka eplin með, til að narta í í frímó ef að ég verð nú svöng". Þannig að eplapokinn fékk að fara með í töskuna. Í gagnagreiningu tek ég upp pokann í pásunni og fæ mér. Býð Siggu Dögg og fleirum. (Atli afþakkaði, heppinn)

Þegar ég er að gæða mér á einu af eplunum, ákveð ég að skoða það aðeins, enda var ég þarna bara í dundinu í frímó. Hafði ekkert annað að gera en að tékka aðeins á því sem ég var að borða, en hefði betur gert það aðeins fyrr, eins og til dæmis í gærkveldi þegar ég var að hakka þau í mig hugsunarlaust!!

Þegar ég fer að rýna í eplið, NEI, þurfti ekki einu sinni að rýna! Er ekki bara félagi ORMUR mættur á svæðið. Svona hress bara, brosir vandræðilega framan í mig, með sitt svarta trýni, og ég er viss um hann hefur sagt á ormamálinu, ekki borða mig líka, PLESAE!

.........Og ekki borða alla ófæddu ormana sem hafa ekki enn náð að klekjast! Því ekki var einungis félagi Ormur þarna heldur trilljón egg út um allt!!

Nei, þetta var ekki draumur. Gerðist reyndar bara núna í morgun. Ég sit hérna og mig klæjar alls staðar. ALLS staðar.

Það fyndna var svo að í hádeginu fórum við krakkarnir á Vegamót. Ég og Anna Steinunn ákváðum að vera nettar og fá okkur humar og súpu. Með humrinum kom svo salat með hrísgrjónum. Litlum sætum hrísgrjónum sem minntu óneitanlega á félaga Orm og hans fjölskyldu í Lions Quest.

Ég mun fara með pokann góða á mánudaginn til framleiðanda, ákvað að tékka á félaganum, svona rétt aðeins. Hann er í góðum málum með sín egg og kúrði sig í pokanum ásamt fleirum................Spurnign hvort ég endurskoðu ekki hollustu fæðið og kaupi mér bara það sem mér finnst best..........Freyju hríspoka!! ummmmmm


|

fimmtudagur, október 28

Við Quarashi diskinn mun ég bæta rafmagns-dósaupptakara.

Svo verður Kristín að hætta að naga naglaböndin......þetta er ekki hægt.
Umsóknir um kúrufélaga voru allt of margar þannig að ég ákvað að fresta vali um stund.

Er í ritgerðarsmíð um ESB, í tilefni þess ætla ég að koma með punkt um hvers vegna við ættum EKKI að sækja um aðild:

Ísland er að borga u.þ.b. 2 milljarða í EES-samstarfinu. Skv. Heildarniðurstöðu Hagfræðistofnunar myndi Ísland borga 3,7-5,6 milljarða á ári ef að við værum aðilar að ESB. Svo er gert ráð fyrir því að þetta framlag tvöfaldist við fulla stækkun ESB, yrði þá um 8,3 – 10,1 milljarður!! ............ha? sækja um? Finnst þér það?

This and many many more...........Skemmtilegt.
|

þriðjudagur, október 26

Kristín María ætlar klárlega að kaupa sér nýja Quarashi diskinn: "GUERILLA DISCO"

Ég er með eitthvað "thing for Quarashi" þessa dagana.
|

DAGURINN Í DAG

Skellti mér á fyrirlestur í hádeginu í Lögbergi: "Ógnar slæðan lýðræðinu?" Með elskulegri Sunnu dísinni minni :) Verið að ræða bannið við trúartáknum, eins og nýleg dæmi sýna í Frakklandi. Ágætur.

Fór í viðveru uppi í Stúdentaráði það sem stúlka sinnir lánasjóðsmálunum. Alltaf gaman að hitta Vökuliða, hressa og káta að vanda. Fór í bóksöluna & keypti mér bókina: "Iceland, Norway and the EC Common Fisheries policy" Mjög fróðlegt.

Fór svo á Stúdentaráðsfund sem var sá lengsti til þessa. Við erum að sjálfsögðu búin að vera að standa okkur í meirihluta og fullt af málum sem við megum vera stolt af eins og ábyrgðamannakerfið, office pakkatilboðið, Rannsóknadagurinn framundan, búið að lengja opnunartíma byggina, Odda, Lögberg, Árnagarð og VR II til 24.00 og margt margt margt fleira :)

Fórum svo á Brennsluna og fengum okkur að borða og spjölluðum saman yfir bjór, vatni og kókglasi.

Annars vildi nú ágætur aðili meina að þetta væri týpískur dagur hjá stúlku:

Vaknaði, fór í Grindó, las í hlöðunni, seldi harðfisk, skipulagði mót fyrir 200 frjálslynda frá afríku sem eru í 2 vikna heimsókn og gista allir heima hjá mér, skrapp til Brussel...og fór svo í vísindaferð um kvöldið, eftir að ég kom heim skrifaði ég heimildaritgerð um pólitísk áhrif Nitzsche á Norðurlöndin áður en ég ákvað stefnu íslands í kvótamálum...

Dæmi nú hver fyrir sig...........

VILL MINNA Á:
Það er HREKKJAVÖKU-PARTÝ Vöku á Pravda á föstudaginn klukkan 20.00. Þeir sem mæta í búning fá frían bjór. Allir að láta sjá sig......Treysti á ykkur Elítumeðlimi. Ekkert að skrópa þó svo það séu ritgerðaskil á mánudaginn sko!
|

sunnudagur, október 24

Jæja, þá er ný vika hafin og Kristín bara nokkuð bjartsýn. Tókst að sofna yfir afleitri mynd í gærkveldi í sófanum og vaknaði ekki fyrr en 10 í morgun......ennþá í sófanum. Já ég vaknaði nokkrum sinnum svona hálfpartinn og var alltaf of þreytti til þess að færa mig.

Stend núna í ritgerðarsmíð og er málið ESB eða ekki? Þjóðernishyggja eða hvað?

Ef þið þarna elskurnar úti langar að koma til mín og kaupa af mér harðfist þá eruð þið velkomin............kenndur við Stjörnufisk sem er THE besti.

Langar ferlega mikið til þess að skella jólalagi á fóninn. Kom nebbla út úr Odda áðan og fann svona frostlykt......hún minnir mig alltaf á jólin :) En það styttist í þessar himnesku stundir. Ég fékk lagið "Svona eru jólin" á heilann á leiðinni heim. Skemmtilegt.

Ekki taka myndina "Laws of attraction" á leigu. AFLEIT.
|

laugardagur, október 23

STJHAG dagurinn var í gær........

Skellti mér í vísindaferð í KB-Banka í gær. Fróðlegt og skemmtileg húsakynni þar á bænum. Tilvalið til þess að taka á móti fólki í vísindaferðir. Það sem mér fannst einna skemmtilegast var allt starfsfólkið sem kom niður og naut nærveru okkar stjórnmálafræðinema......gáfu sig ekkert sérlega mikið á tal við okkur og í lok fyrirlestrarins sá Kristín ástæðuna.

Margar og miklar voru veitingarnar sem starfsmenn KB-Banka slógu ekki hendinni á móti. Það athyglisverða við þetta allt saman var að þetta voru ALLT karlmenn!! Eftir að fyrirlestri lauk og fólk var búið að þamba bjórinn og gúffa í sig lá leiðin á Pravda. Þar kepptu stjórnmálafræðinemar við hagfræðinema í ræðukeppni, bjórþambi & sjómanni karla og kvenna. Við sigruðum ræðukeppnina ásamt því að Rebbi var kosinn besti ræðumaðurinn, svo sigruðum við líka sjómann karla og kvenna og stóðu Þormóður og Anna Steinunn sig eins og sannar hetjur! Auðvitað sigruðum við svo Hólmsteininn!

Eftir að Kristín var búin að þamba 15 glös var vatni þetta kvöldið lá leiðin heim um eitt leytið. Skellti með mér einum ógeðs-Kebab og mun aldrei aldrei, aftur kaupa mér þann óþverra! Eitt stykki langt svart hár og mín fékk nóg, auk þess er þetta viðurstyggð á bragðið.

Nú liggur leiðin með honum Adda mínum á Hlöðuna þar sem við tekur ritgerðarvinna. Addi er ekki jafn hress og Kristín í dag enda var allt annað en vatn í glasinu hjá honum í gær! Hann hvílist hinum megin í íbúð Eyrúnar sem er alltaf svo ágæt í að hýsa þennan Grafarvogsbúa!

Leiter folks!
|

miðvikudagur, október 20

OFNARNIR KOMNIR Í LAG.........

Skellti mér á Þjóðarbókhlöðuna í dag. Aldrei þessu vant! Hún er líka opin til 22.00 á miðvikudögum. Hafinn er undirbúningur á ritgerð í Evrópusamvinnu-námskeiðinu..............a.k.a. Brussel-liðið. Fór og aflaði mér nokkurra heimilda til þess að geta hafið vinnuna fyrir alvöru. Þar var auðvitað Brussel-familían mín...........nei, nema Addi, alveg rétt, hann ákvað að fara EKKI í þessa ferð. Leiðinlegt. Framundan er nebbla Brussel-partý. Nei ég er hætt að bögga þessa elsku. (Bara að standa við það sem ég sagði þér, ef þú kæmir ekki með)

En ég kom inn í hlýja íbúð í dag. Hringdi nebbla í hr. Gunnar umsjónarmann fasteigna hér á svæðinu og þjónustan er frábær! Þegar ég kom heim voru allir ofnar á milljón og ég er hætt að drekka sjóðandi te í bili.

Annars er það nýjasta að frétta af stúlku að framundan er læri-helgi og skemmtilegheit, nammidagur og alles. Svo VERÐ ég reyndar að kíkja á STJHAG daginn (bara fyrir Siggu formann) og svo aftur í læri læri. Svo eftir rúmar tvær vikur er ég flogin af landi brott til Norge. Ætla að búa þar í nokkur ár....................nei nei, bara smá helgarstopp.

Well, that´s all folks!!
...........for now
|

þriðjudagur, október 19

KULDABOLI KOM Í GÆR..............KÚRUFÉLAGI ÓSKAST!!

Það hefur örugglega farið fram hjá fæstum að vetur konungur þjófstartaði í gær. Hann kom með látum. Ekki nóg með það, hann henti í mig hálsbólgu og kvefi. Það gerðist það sama nú í ár eins og í fyrra þegar fór að kólna, ofnarnir hættu að virka! Skemmtilegt. Núna dæli ég ofan í mig heitu sítrónute með hunangi og sit með trefilinn vel vafinn um hálsinn. Ullarsokkarnir eru komnir fram og teppið líka. Það vantar eitthvað meira í rúmið mitt, þar eru fyrir 6 koddar, tvær sængur og tvö teppi.............nei ég er ekki að gínast. Jú oft verður heitt en það er bara gott. En fyrir utan mig og öll teppin og sængurnar og koddana er alveg meira pláss. Ef einhverjum öðrum er jafn kalt og mér, og á kannski ekki svona mikið af koddum þá má hinn sami koma og kúra við mig.

Kúr er hollt og gott..............í svona veðri!
|

sunnudagur, október 17

KOMIN HEIM FRÁ BRUSSEL

Ég á ekki orð yfir að lýsa þessari ferð minni til Brussel. Hún kostaði nokkuð í peningum en þeir eru algjört aukaatriði miðað við upplifunina. Krakkarnir voru frábærastir & að fá að kynnast þeim á öðrum vettvangi en á kaffistofunni í Odda var ómetanlegt. Get ekki sagt annað en ég hlakki til að mæta í skólann aftur á morgun og rifja upp skemmtilegar stundir liðinnar viku. Það var mikið gert og stífir fyrirlestrar sem við sóttum, NATO, SHAPE, EFTA, ESA, ESB. Allt mjög fóðlegt. Þegar við vorum ekki í fyrirlestrum þá vorum við annað hvort að versla, úti að borða eða að fá okkur Belgískan bjór, ummmmm hvað hann var góður og sjaldan undir 8% í styrkleika. Kristín drakk mikið af honum enda eitt það besta sem hún fær sér. En bjórinn er fitandi og undir lok ferðarinnar varð hún að fara og kaupa sér pils til þess að geta verið í einhverju öðru en joggingbuxum því ekki pössuðu gallabuxurnar lengur. Ég er svo óþolinmóð og fór allt í einu að pæla í þessum Hollywood-kúr sem alltaf er verið að auglýsa, væri kannski sniðugt að prufa og geta þá farið í gallabuxurnar fyrr. En ég held að ég sé hætt við eftir reynslusöguna sem ég las um þennan kúr. Elísa María sendi mér hana á meil og ég ætla hér með að deila þessari skemmtilegu sögu með ykkur hinum og líka þeim sem eru eða voru að spá í því sama og ég.

Reynslusaga af Hollywoodkúrnum:

Ég ákvað að prófa þennan umtalaða Hollywoodkúr sem allir eru að tala um. Það var nefnilega árshátíð í fyrirtækinu mínu akkúrat eftir tvo daga ogmig langaði til að vera flott í kjólinn. Ég átti einmitt akkúrat fyrirflöskunni og miða á árshátíðina. Eftir að hafa lesið leiðbeiningarnar þátók ég við að drekka djúsinn. Hann var rammur og vondur á bragðið en églét það auðvitað ekki stoppa mig. Svo átti ég að þamba vatn á milli þesssem ég fengi mér djúsinn.

Eftir ck. klukkutíma varð ég að hlaupa á klóið því það var eins og flóðhefði farið af stað í iðrum mér. ÉG ætla ekki að lýsa því hér hvernig mérleið á klóinu og hvað margir lítrar runnu úr rassinum á mér en alla vegafór örugglega eitt kíló af mér þarna.Ég hélt svo áfram að þamba vatn og fá mér gollara af djús öðru hvoru. Umhádegið eftir nokkrar klósettferðirnar þá var ég hreinlega að deyja úrhungri. Drakk meira vatn og meiri djús - á klósettið - meira vatn og meiridjús - á klósettið..osfr.

Um kvöldið var hætt að renna úr æðri endanum enég pissaði þeim mun meira. Fór drullusvöng i háttinn og svaf vægast sagtmjög illa, með heiftarlega magaverki , trúlegast af svengd.Næsta dag byrjaði sama píningin aftur en nú var ég ekki eins svöng - enóstjórnlega illt í maganum. Allan daginn drakk ég djúsinn og vatnið og fórþess á milli á klósettið. Um kvöldið var ég að fara á árshátíðina og éghlakkaði mikið til að stíga á vigtina.

LOKSINS drakk ég síðustu dropana úrflöskunni og kúrinn var búinn! JIBBÝ! Ég klæddi mig úr öllu og hljóp inn ábað , steig á vigtina og trúði varla mínum eigin augum! 4,5 kíló farin!Bara sísvona. En það var svo sem ekki eins og ég hefði ekkert haft fyrirþessu, allar klósettferðirnar og svengdin og magaverkirnir..uss. Ég varlíka hálfslöpp, kom mér varla í árshátíðarkjólinn og hafði enga orku í aðmála mig. Tók leigubíl niður á hótel Sögu og rétt var komin inn um dyrnarþegar að það leið yfir mig!

Næringarskortur sögðu læknarnir..og ég missti af árshátíðinni!

|

miðvikudagur, október 13

DIPLOMA BRUSSEL

Skemmtilegt er that i henni Brussel nuna. Stulka for adan med lidinu i Kebab og gos og bara nokkud god stemmning midad vid hanott i Bussel. Vorum i allan dag i islenska sendiadinu og hafdi mjog gaman ad enda vel {[]]}}}]~~´´
|

föstudagur, október 8

...............8 tímar í brottför til borgar diplómanna, Brussel. Viku dvöl með frábærasta fólki í heimi!! Verður án efa geðveik upplifun og allir ganga með "work in Brussel" í maganum eftir ferðina. En anyhú, þið sem eruð áfram á klakanum í hinu hefðbundna amstri...........hafið það gott. Hægt verður að ná í mig með póstkorti...........sendist á íslenska sendiráðið í Brussel bara.

Hvað er svo málið með þetta ídol?? Ég get varla horft á þetta. Vorkenni þessu fólki sem er að gera sig að algjörum hál****m þarna. To much for me to handle og þið sem voruð að spá í að bjóða mér í Idol-partý...............sleppið því bara.
|

fimmtudagur, október 7

MÁLEFNARÁÐSTEFNA VÖKU Í KVÖLD!!

Mæli með því að allir áhugasamir kíkji við í Garðsbúð (húsið sem bóksalan er í) í kvöld klukkan 20:00 og fái sér veitingar. Við í VÖKU ætlum að kynna starfsemi okkar og það sem við erum að fást við í Stúdentaráði. Kristín mun auðvitað kynna lánasjóðsnefndina og allt það skemmtilega sem við erum að gera þessa dagana.

Allir að láta sjá sig. Ég lofa því að enginn verður svikinn á því að mæta og hitta allt frábæra fólkið sem stúlka er að vinna með í félagsstörfunum :)
|

miðvikudagur, október 6

NÆST Á DAGSKRÁ:

Fyrir utan það að vera að fara til Brussel á laugardaginn þá ætla ég mér að fara með Björn Óskar bróðir á BLINDSKER, saga Bubba Morthens. Við erum álíka spennt.

Dagurinn er föstudagur 8.október.

Þakka Bryndísi samveru í gærkveldi þar sem við snæddum ljúfan kvölverð og áttum gott spjall. Mikið sem drífur á okkar daga þessar stundirnar.
|

mánudagur, október 4

FÍNASTA HELGI
Fór suður til Grindavíkur og var markmiðið að læra. Tjái mig ekki meira um það. Gott að koma heim í kotið og hitta meðlimi fjölskyldunnar, þó svo það hafi vantað Sigga bró sem því miður fékk ekki að koma heim á laugardag, vinurinn búinn að hafa sig til brottfarar og þá sýndi blóðrannsókn að drengur varð að vera í lækna"spa" áfram. Kristín gerði þá stormandi lukku að fara með mömmu til Reykjavíkur að ná í Sigga og ætlaði svo að vera eftir í kotinu sínu til að læra meira. Kom þá í ljós þegar í borgina var komið að lyklunum gleymdi hún heima. Skemmtilegt. Eftir 3ja klukkustunda tjill í bænum komust lyklar á leiðarenda.

Afmæli Konna var nokkuð nett. Flaut þar allt í áfengum drykkjum og átti enginn að komast út með höfuðið á réttum stað. Kristín ákvað að droppa við hjá afmælisbarninu svona aðallega til þess að hitta hann og Elítu-meðlimi enda sakna ég þeirra ávalt ef það líða lengur en 24 tímar á milli hittings. Það fór ekki svo að Kristín færi ein á EGO því í Konna-partýi hitti ég EGO-fan dauðans og vin hans sem ákváðu að skella sér með stúlku á NASA. Þegar niður á Austuvöll var komið voru þeir þegar byrjaðir að spila og gvöð hvað húsið var troðið. Mátti þakka mínu sæla að komast út af dansgólfinu þegar ég rauk inn á það til þess að taka þátt í stemmningunni. Skaust aftur út úr þvögunni með skottið á milli lappanna og upp að bar þar sem ég stóð bara í tröppunni þar og fylgdist með úr fjarlægð. En það var í góðu vegna þess að sama hvar maður tróð niður fæti, allstaðar var maður inni í miðju fjöri. Hitti svo auðvitað Grindjána sem voru BARA hressir og fleira fullt fólk. Eftir að EGO lauk sér af tæmdist húsið og stúlka lét sig hverfa inn á annan stað þar sem hittingur var við áhugaverða aðila. Komin heim seint eftir leigubílaröð dauðans!! Næst þegar á djammið er farið eru það strigaskór og dúnúlpa...............eftir á...........skokk heim :)
|