fimmtudagur, september 30

EGO er það......................
Loksins loksins þegar minns er búin að ákveða maraþon lestur, þá gerist það!! EGO. Eftir allt það sem i boði er búið að vera í allt sumar hefur ekkert heillað mig nóg mikið til þess að láta verða að því að fara út úr húsi. Ég er búin að vera nokkuð öflug núna, mun vera það líka á morgun og svo allan laugardaginn..............svo skelli ég mér á NASA og hlusta á mína bestu tóna fyrr og síðar. Svo á sunnudaginn er markmiðið að vakna fersk og halda áfram maraþoni!! Jibbí jibbí....................næ í tvö stykki miða á morgun og mun hita upp með "Fjöllin hafa vakað" & "Stórir strákar fá raflost" á leið til Grindavíkur. ..............jafnvel fleiri góðum.

Hver vill koma með? Held einhvern veginn að það séu aðallega bara strákar sem ég þekki sem fíla Bubba og EGO eins mikið og ég. I want FAN with me, og þar sem Siggi bró er ennþá á la hospital þá kemst hann ekki með mér. Fúlt.
|

miðvikudagur, september 29

Svo sniðug í plönum!!
Miss Kris var farið að hlakka til helgarinnar enda sá tími yfirleitt ánægjulegur hjá minni, þá sjaldan hún fær sér einn kaldan........stundum fleiri. Um helgar gleymist amstur vikunnar og ég sökkvi mér ofan í unað og gleði................Var búin að gera mér það í hugarlund að njóta "Október-Fest" sem verður 1.október og svo kíkja yfir til miss Eyrúnar nágrönnu og heiðra hana með nærveru minni. En svo ákvað stúlka að láta skynsemina ráða ferð og mætti hún alveg gera það oftar. Nú er svo komið að prófa á mannskapinn í stjórnmálum 3ja heimsins á mánudaginn og því um lítið annað en að lesa og lesa, enda hefur minn tími þessa önnina farið í allt annað en lestur á námsefninu............sama hvað ég ætla alltaf að vera dugleg þá endar þetta allaf í sama hel****s farinu. En alla vegana, búin að blása fyrri plön af og hafði hugsað mér að hendast suður til Grindjánaborgar og hjúfra mér í fangið á múttu, derka við Sigga bró sem er nota bene sjúklingur og lesa á hinum stundunum.
CLEVER!!

En núna ætlar stúlka líka að fara í það að lesa og kannski...........bara kannski verða afköstin það mikil að mín kannski gerir eitthvað á laugardaginn. Who knows...............svo spennandi.
|

mánudagur, september 27

Splendid weekend
Er þá ekki barasta komið að því að skella inn pistli um það sem átti sér stað þessa helgina? Þessi vikulok voru frekar stíf en skemmtileg. Kristín byrjaði á því að mæta samviskusamlega í Bandarísku stjórnmálin á föstudagsmorgun eftir að hafa skutlað Sigga bró á la hospital í rokrassgati dauðans. Ég sá fram á að mæta seint í tímann þannig að ég ákvað að fara þessa stuttu vegalengd á bílnum. Hefði sko betur átt að sleppa því auk þess að vera með það á hreinu hvar tíminn átti að vera. Byrjaði á því að bruna upp í bíóið og gekk þar inn í ranga stofu. Hringdi svo sos call í Siggu og hún sagði hann vera í Lögbergi! Fylgjast með Kristín!! Allt í læ, mín brunar þá út í lögberg og eyddi svona 15 mín að rúnta um bílastæðin (sem eru mjööööög takmörkuð) Kemst sveitt og móð loksins í tíma. Siggi var búin að segjast þurfa vera alla vegana svona 3 tíma á spítalanum og Kristín gleymdi svo símanum sínum í bílnum. Þegar ég er svo búin í tíma og (sem var 4 faldur) og rölti að Norræna húsinu þar sem ég lagði sé ég 14 missed calls á símanum!! Siggi var þá eftir allt ekki nema í 1 og 1/2 tíma þarna í kotinu á la hospital.
Það reddaðist nú alls saman og hann tók allt lesefnið og las það upp til agna.

Krakkarinir frá Norge, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi voru nú öll að berast til landsins og allt að hefjast hjá UF. Byrjuðum á að hittast í Aðalstræti 9 og röltum þaðan út í Alþingi þar sem við fórum túr, þó ekki inn í aðalhúsið vegna framkvæmda. Skelltum okkur í nefndahúsið og hlustuðum á sögu þingsins á video í máli og myndum. Eftir það var farið aftur út í Aðalstræti þar sem flokkurinn bauð upp á hákarl, brennivín og harðfisk að vestan, ásamt ostum vínberjum og gosi.Kristín gerðist svo kræf að smakka brennivínið og það 2 staup! Geri aðrir betur. Eftir það fórum við á Rossopomodoro þar sem við fengum allt of mikið og gott að borða. Vorum afvelta og rúlluðum eftir það niður Laugavegninn og enduðum á Pravda það sem lýðurinn átti ekki orð til að lýsa ánægju sinni með þann stað. "Frjálslynda" myndin á veggnum þar gerði sína lukku. Þar tjúttuðum við frameftir nóttu og mættum síðan galvösk á Kaffi Reykjavík daginn eftir þar sem dagskráin hófst að alvöru með fyrirlestri prófessors nokkurs úr HÍ. Hann var mjöööög "hress" með bjór í hönd og byrjaði á því að fara út um víðan völl og frekar út fyrir efnið sem hann var fenginn til þess að ræða um. Kristín sló því á það ráð að taka "breik" frekar snemma og ýtti herra prófessor aftur á sporið. Eftir það vou spurningar og svör. Hádegisverðurinn var mjög fínn, hlaðborð á Kaffi Reykjavík (sem er NB orðinn hinn glæsilegasti staður) og svo tók við hópavinna þar sem við ræddum norræna samvinnu ýtarlega. Klukkan 16 var ferðinni heitið í Bláa lónið. Kristín stóð sig með stakri príði í að vera leiðsögumaður með fóninn og sýndi þeim helstu pósta Reykjavíkur. Eftir spa-ferðina í lónið fór rútan með okkur heim til mín og minna á Dalbrautina í Grindavík þar sem við tók dinner a la mamma. Fólkið átti vart orð yfir að lýsa ánægju sinni í þetta skiptið á matseld móður minnar og ég er búin að lofa að senda öllu liðinu uppskrift af humarsúpunni. Eftir að hafa borðað 3ja rétta máltíð heima hjá mér, drukkið marga marga bjóra og tjattjað og skemmt okkur lá leiðin hjá liðinu aftur í bæinn og það kom ekkert annað til greina hjá þeim en að fara aftur á staðinn með "frjálslyndu" myndinni. Stúlka varð hins vegar eftir og ákvað að heilsa upp á bæjarbúa sína í Festi þar sem hin árlega samkoma þorpsins var haldin. Gaman var það og átti ég nokkar mjög skemmtilegar umræður við nokkra mjög skemmtilega einstaklinga.
Sunnudaguinn hófst svo klukkan 10 á Kaffi Reykjavík í pallborðsumræðum. Til okkar komu Magnús Þór Hafsteinsson og Eiríkur Bergmann og ræddu þeir Norræna samvinni og framtíð hennar auk þess að koma all verulega inn á ESB, enda Eiríkur okkar helsti sérfræðingur í þeim málum ásamt auðvitað mínum ágæta kennara Baldri Þórhallssyni.

Það er frá svo ótrúlega miklu að segja en ég verð að láta þetta gott heita í bili vegna þess að ég er að fara í skólann. Eftir annasama og lærdómslausa helgi er að nógu að taka núna í náminu.
úffpúff
|

fimmtudagur, september 23

Fékk þennan DREP-FYNDNA frá Elísu Maríu

Eldri maður giftist mun yngri konu og voru þau mjög ástfangin.
Gallinn var þó sá að hversu mikið sem þau reyndu gat maðurinn ekki veittspúsu sinni fullnægingu í rúminu.
Ákváðu þau því að leita til læknis. Sá hafði ráð undir rifi hverju ogeftir að hafa hlustað á söguna ráðlagði hann þeim að ráða til sín ungan og glæsilegan mann. "Á meðan þið njótið ásta skuluð þið fá hann til þess að veifa handklæðiyfir ykkur. Ímyndunarafl konunnar ætti þannig að fara á fullt og hún ætti að fásterka fullnægingu." Hjónin ákváðu að reyna þetta og réðu til sín fjallmyndarlegan og vöðvastæltan mann til að veifa handklæðinu. Þrátt fyrir það gekk henni ekkert betur að fá fullnægingu. Þau ákváðu því að tala aftur við lækninn. Hann ráðlagði þeim að skipta umhlutverk. "Nú skuluð þið fá unga manninn til að nóta ástar með konunni á meðan þúveifar handklæðinu," sagði hann við gamla manninn. Aftur ákváðu þau að fara að ráðum læknisins og fór ungi maðurinn í rúmiðmeð konunni á meðan sá gamli sá um handklæðið. Ekki leið á löngu þar til konan fékk gríðarlegar fullnægingar, aftur ogaftur svo herbergið lék á reiðiskjálfi.
Þegar þau höfðu lokið sér af leit sá gamli brosandi á unga manninn."Þarna sérðu," sagði hann sigri hrósandi. "Það er SVONA sem maður á aðveifa handklæði."

Þetta er svoooooo fyndið!! eru þetta menn yfir höfuð eða bara eldri menn???
|

miðvikudagur, september 22

Prófessorar, þingmenn & ráðherrar................
Elska þetta fólk. Svo viljugt.
Elska líka þegar maður er búin að vera að reyna við eitthvað eins og rjúpan við steininn...............og svo allt í einu gengur það!! Bling bling, smellur eins og flís við rass!
Já ég skal svo segja ykkur það! Hlutirnir eru að ganga upp hér á bæ, þetta er allt saman að reddast.
|

mánudagur, september 20

Mánudagur aftur.
Helgin leið á ljóshraða. Kristín tók harkalega á næturlífi borgarinnar og var í ölþambi a la Ung frjálslynd á föstudeginum og tók svo sangríu-drykkju hjá Bryndísi sem Védís sá um að blanda af stakri snilld. Eftir "mixið" á Sangría og Bompay gini lá leiðin á öldurhús bæjarins og var ferðinni heitið á nokkra "misheita" staði. Klukkan rúmlega 6 gafst Kristín upp og hélt heim á leið í kotið sitt. Mikið var sunnudagurinn erfiður enda stúlka ekki vön að taka svona svakalega á því tvo daga í röð. Mánudagurinn er hafinn og ný BUSY vika framundan þar sem við erum í óðaönn að undirbúa seminarið góða. Við frjálslyndapakkið á Norðurlöndunum munum koma við í Bláa lóninu á laugardaginn þar sem verður endað í hlaðborði hjá gestrisnum foreldrum Kristínar. (þessar elskur). Nú er ekki um annað ræða en að fara að halda áfram að skipuleggja sig á milli þess sem stúlka reynir að koma lestrinum í námsbókunum á skrið. Gengur misvel.
Hasta la vista!!...............það er ekki annað að sjá en sangrían hafi skilið eftir spánskt ívaf í minni..................
|

fimmtudagur, september 16

ÉG Í DAG..................
Spakmæli a la Kristín:

* Andartakst skortur á umburðarlyndi getur kostað ævilanga iðrun.

* Þú skalt ekki ala orma sem nagað geta þín eigin innyfli.

Gott að hafa svona málshætti og spakmæli annars lagið á bak við eyrun..........bæði.
|

þriðjudagur, september 14

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ SIGGI BRÓÐIR!!
Já hann Siggi Þór bróðir er 27 ára í dag. Ég hringdi í kall í morgun og minnti hann á að hann ætti afmæli. Hann vissi það alveg. En hvað vill drengur í afmælisgjöf??
Hávaxin, ljóshærð, stór brjóst, stinnur rass, blá augu, falleg á hörund, smá "tan", háskóla-stúdína, skemmir ekki ef að hún er búin að læra eitthvað sniðugt, barnlaus og dugleg. Má eiga flottan bíl og fallega íbúð. Einhver sem passar við þessa líkingu má hafa samband við mig :)
Hún má svo koma með sellófón og bleikan borða.
Gott væri ef ég gæti fært honum hana áður en 14.september tekur enda. Stúlkur, þið hafið fram á miðnætti!!

P.S. um er að ræða mikinn feng.
|

mánudagur, september 13

ÖRSTUTT SLÖKUN & TJÚTT
Stúlka er búin að vera busy as hell undanfarna daga og hefur rétt náð að kasta mæðunni. Stúdentadagurinn tókst mjög vel og Vökuliðar duglegir við að svara kalli Kristínar um aðstoð við hitt og þetta. (takk elskurnar). Eftir að dagskrá lauk á föstudaginn þar sem stúdentar HÍ hámuðu í sig pylsur og skoluðu ýmist niður með kóki eða bjór í boði Vífilfells, brunaði Kristín á Avis bílnum upp í Efstaleiti á RÚV þar sem hún tjáði sig um efni fyrirlestrar síns daginn eftir. Mikið stress var í gangi enda stúlka ekkert búin að ná að einbeita sér að fyrirlestrinum vegna anna við störf Stúdentaráðs. Hún hafði sig þó í það að vakna tvo morgna klukkan 6 til þess að lesa heimildir. Síðan sá hún fram á að þurfa að eyða föstudagskvöldinu í að klára framsöguna um mannréttindin þannig að hún sá sig knúna til þess að skrá sig úr vísindaferðinni (fyrstu þessa vetrar) sem hún var búin að láta sig hlakka til að fara í. Kvöldinu eyddi hún í staðinn fyrir framan tölvuna þar sem hún setti herlegheitin upp í powerpoint. Laugardagurinn hófst svo klukkan 6 aftur, þriðja daginn í röð og setti Kristín lokahönd á verkið. Um klukkan 15.30 upplýsti ég áhugasama um skerðingu mannréttinda víða í heiminum eftir 11.september 2001. Framsagan gekk vel, það vel að vinstri-forsprakkinn, Ögmundur Jónasson hrósaði sérstaklega, en hann var einn af framsögumönnum líka. Nokkra tonna fargi var létt af Kristínu og fagnaði hún ákaft um kvöldið. Fór í afmæli til Sigrúnar, ársveislu á Pravda og endaði í partý í Grindavík, rölti heim til múttu og karls klukkan 10 á sunnudagsmorgun, svo mikið var fjörið enda Grindvíkingar ekki þekktir fyrir rólegheit. Nú er þessi örstutta slökun á enda og við tekur lestur og aftur lestur um samvinnu Evrópubúa, vandamál 3ja heimsins og forsetakosningarnar í USA. Seminarið góða er framundan þar sem ungt frjálslynt fólk mun taka á móti svipuðu gengi frá Skandinavíu. Mikil skipulagning því framundan...........aftur.........
|

mánudagur, september 6

www.toothsmith.blogspot.com

Þetta er konan sem átti söguna "Er ég blind?". Ég vil ekki vera að stela sögum en ég vissi ekkert hvaðan þetta kom upphaflega, enda margir búnir að copy-a þetta inn á bloggið sitt. Bara fyndið as hell og must að lesa!
Hér hafið þér slóðina.
|

sunnudagur, september 5

Motto to live by

Hún Erla mín Ósk í USA sendi mér þetta skemmtilega mottó.........

"Life should NOT be a journey to the grave with the intention of arriving safely in an attractive and well-preserved body, but rather to skid in sideways, champagne in one hand - strawberries in the other, body thoroughly used up, totally worn out and screaming WOO HOO - What a Ride!"

...........nokkuð til í þessu.
|

miðvikudagur, september 1

ég grét og grét......................þetta er svoooooooo fyndið!!

laugardagur, ágúst 07, 2004
Er ég blind???????

....Nei, ég er ekki blind, en stundum tek ég upp á skrítnum hlutum eins og til dæmis á föstudaginn þegar ég var búin að vinna.....mamma hafði komið til mín í vinnuna til að skila plast-geisla sverðinu sem Þorsteinn sonur minn (5ára) hafði gleymt heima hjá henni kvöldinu áður. Þetta er svona hvítt plast sverð, en samt eins og stafur í laginu... Ég var sem sagt að fara úr vinnunni í ansi góðu skapi, þarf að ganga niður 3 hæðir, (nema þegar ég er sérstaklega löt þá tek ég lyftuna) Ég lokaði hurðinni að vinnunni minni sveiflandi sverðinu og byrjaði að ganga niður stigann og í einhverjum andsk... fíflagangi fór eg að leika blinda manneskju, rétti aðra höndina fram með geislasverðinu góða og þóttist vera að fikra mig niður stigann, ég átti ekki von á því að nokkur myndi sjá mig svona enda heyrir maður alveg ef einhver annar er að labba stigaganginn....eða hvað ??? Ég hef heyrn eins og fálki....en eitthvað klikkaði illilega hjá mér og heyrn minni þarna. Ég var svo niðursokkin í blindraleik mínum að ég tók ekki eftir konu og unglingsstúlku sem mættu mér í stiganum, og þar sem ég er að fikra mig niður með sverðinu sé ég að konan gefur unglingsstúlkunni fast olnboga skot og gefur henni eitthvað merki. Hvað átti ég að gera ? átti eg að láta sem ekkert væri og spretta niður stigann..... eða átti ég að halda upptekknum hætti og leika blindu manneskjuna fram hjá þeim ??? Auðvitað hefði ég átt að brosa framan í þær og segja eitthvað á þessa leið: "æ. fyrirgefið þið, ég er að ath. hvort það sé óhætt að hleypa blindri vinnkonu minni hér niður"...bla...bla...bla.... en nei, hvað gerir vitlaus 42 ára gömul kona eins og ég ???.... nú ég held áfram að fikra mig niður með sverðinu og vona bara í lengstu lög að þær verði fljótar framhjá mér. Þegar ég er rétt að komast framhjá þeim finn ég mér til mikkillar skelfingar að tekið er þéttingsfast undir hendurnar á mér...já ég sagði hendur. Þær tóku sér stöðu sitthvoru megin við mig og sú eldri sagði "Við skulum fylgja þér niður" Oh... my... god....svo hófst leikurinn, "trappa"..."trappa"..."trappa"...þetta þuldu þær alla leiðina niður þessar 3 hæðir. Þegar við komum niður þakkaði ég þeim fyrir og staulaðist af stað veifandi geislasverðinu í allar áttir ( reyndi eftir fremsta megni að leika þetta vel) eitthvað fannst þeim ég vera klaufsk og áður en ég vissi var sú eldri komin að mér aftur og heimtaði að leiða mig alla leiðina út á götu, ég reyndi að afþakka en hún bara var þrjóskari en andskotinn og gaf sig ekki,hún opnaði millihurðina (það eru sko tvær hurðir til að komast út) og þegar við vorum komnar að aðal-útidyrahurðinni mæti ég afgreiðslustráknum í verslun sem er á neðstu hæðinni, hann horfði á mig með undrunnarsvip, heilsaði og spurði hvað væri að mér. Þá snéri sú sem var að fylgja mér sér að honum og hreytti í hann: hvað er að henni?... hvað er að þér ?sérðu ekki að hún er blind ?! ég laumaðist til að kíkja á úrið mitt og sá mér til mikillar skelfingar að ég átti að sækja Þorstein á leikskólann eftir 7 mín. Ég snéri mér að konunni horfði samt framhjá henni , svona eins og blind og hreyfði höfuðið til hliðana eins og hann væri taktmælir á hægri stillingu ( hef séð blinda vísnaflautuleikarann gera svona) og sagði: "yndis-þakkir fyrir hjálpina, ég redda mér núna" Hún svaraði : "ekkert að þakka, gangi þér vel". Svo staulaðist ég út með geislasverðið hans Þorsteins og beið eftir að konan mundi láta sig hverfa upp stigann. Nei......... konan lét sig ekki hverfa, hún stóð þarna úti og seilaðist ofan í veskið sitt, tók upp sígarettupakka og kveikti sér í einni rettu. Hvað átti ég nú að gera ? ég var orðin of sein að sækja Þorstein. Andskotinn sjálfur.... ég mátti ekkert vera að þessu, hver hafði líkað beðið þessa kellu að skipta sér að mér, ég opnaði bílinn henti geislasverðinu aftur í og keyrði í burtu. Ég mun ekki reyna að lýsa svip konunnar þegar hún horfði á eftir mér.
|

Brjálað að gera.
Er með mjúsík band to redd.
Máiggi ver´aðissu.
Update coming l8ter.
|