ALLT AÐ GERAST
Búin að vera að vinna í ritgerðinni sem ég er að gera í samanburðarstjórnmálum. Ég er að bera saman völd forseta BNA og völd forsætisráðherra Bretlands. Skemmtilegt og mjög fróðlegt. Gaman að segja frá því að þegar ég var á kafi í að lesa allar þessar heimildir sem ég er búin að ljósrita upp fyrir axlir, fékk ég hugdettu. Ég ákvað að skella mér á 4.hæð á hlöðunni og gá hvort ég finndi nú ekki bara einhverjar skemmtilegar heimildamyndir. Svona bara í gamni. Eftir hlaup upp og niður á hlöðunni, ýmist eftir ljósritunarkorti eða útlánskorti fór ég heim með þrjár myndir. 60 mín, 30 mín og 33 mín. Ekki svo slæmt.
Fysta myndin sem ég skellti í tækið var "Presidents and politics with Richard Strout" sem er svo merkilegur kall fyrir það að hafa lifað heila 12 forseta í BNA!! Ótrúlegur kall. Myndin var ágæt en engar ógurlegar uppl. fyrir utan það að sá forseti sem honum fannst bera af í að höndla pressuna var Franklin D. Roosevelt. Bara spjall á milli hans og fréttamanns ásamt nokkurm skemmtilegum myndskotum frá því í dentíð.
Önnur myndin sem ég skelli í tækið var (eða átti að vera) "The United states becomes a world power" var mjög spennt fyrir þessari mynd, síðan 1974 reyndar og er um utanríkismál BNA og þegar Maine var sökkt árið 1898. Gaman að því! En þegar ég er búin að skella myndinni í tækið og set á play........byrjar þá ekki bara leikin kvikmynd!! Ég byrja svona að horfa og bíð eftir því að titillinn komi upp..........birtist þá ekki bara "I know why the cages bird sings" Frábært, en ég gat svo sem hlegið í byrjunaratriðinu þegar kennslukonan bannar nemandanum að svara sér þegar hann segir "yes mem" og þá svarar hann (óvart)"yes mem, no mem, yes mem........I mean............mem"
Síðan var komið að því að skoða þriðju myndina "Visit to the white house" vissi það svo sem að það yrði ekki mikil hjálp í þeirri mynd en hún var mjög skemmtileg. Þarna er rakin saga hvíta hússins. Að Geore Washinton var eini forsetinn sem ekki bjó þarna, það brann einu sinni svo að aðeins útveggirnir stóðu eftir, síðan varð að endurbyggja það vegna þess að timburgólfið var hætt að þola allan þungann og öll herbergin þar bera nöfn eins og "blue room", "red room", "yellow rome" og.............nei nú er ég hætt. Getið bara tekið þessa mynd.
Framundan er spilakvöld hjá Kollu bollu, á morgun, afmæli hjá mér á laugardaginn, já ég á afmæli þá en ég er ekki að halda upp á það..............ummmmmm, alla vegana ekki viss ennþá. Frekar stuttur fyrirvari þá. Og svo allt að gerast á sunnudaginn. Kann ekki við það að opinbera það hér á síðunni :) (ein voða nastí)
Góða helgi alle sammen!
|