HUGMYND DAGSINS:
Er að flýja ríkið. Einhvers staðar segir að ríkið sé óumflyjanlegt, en það væri vel hægt að reyna. Fara nokkur saman á eyju úti á ballarhafi og vera þar í svona 1-2 ár. Hugmyndin felur í sér að við myndum vera þarna einungis fyrir það að lifa af og hafa ofan í okkur, við þurfum ekkert á okkur vegna þess að það mun vera heitt þarna :) Eyjan verður að vera frekar lítil, og þar verða að vaxa ávextir, það verður að vera foss með fersku vatni og nóg af trjám til þess að byggja eitthvað sniðugt. Síðan munum við vera þarna, án afskipa ríkissins. Ef að við slösum okkur þá verðum við bara að redda okkur.
Það fólk sem er velkomið með:
Allir einhleypir og barnlausir
Lækanemar 3-4 ári(nauðsynlegt)
Sálfræðinemar helst á 3 ári (nauðsynlegt)
Stjórnmálafræðinemar (til að gera seinna BA verkefni um þetta)
Laxveiðimaður
Smiður
.....og svo allir þeir sem telja sig geta lifað í kommúnu í sátt og samlyndi á eyju þar sem ekkert ríki stjórnar, og fólk sem ekki þjáist af heimþrá á háu stigi.
Svo getum við náttúrulega bara keypt okkur eyju, þessar eru til sölu á súper prís : skoðið |



