Merkilegt hvað mér tekst alltaf að fara að gera eitthvað allt annað en að lesa! Nú sá ég eitthvað próf á netinu og ákvað að slá til þó svo að ég líti nú bara á svona próf sem dægrastyttingu! En ég vaknaði rúmlega 10 í morgun, sofnaði í sófanum eftir að myndin goodfellas var búin, reyndi að horfa á Samsæriskenninguna eftir það en sofnaði, og vaknaði ekki fyrr en í morgun, og svei mér þá þá svaf ég bara nokkuð vel í sófanum! Ég er núna búin að vera að dunda mér við þessa nýju síðu mína, búin að fá nokkrum sinnum smá kast en jafna mig alltaf á endanum. Núna er ég að vinna að myndaalbúmi, komst að því eftir að ég var búin að vera að setja myndir inn að það svæði var læst, þannig að ég sótti um opið svæði og er að vinna í því að koma þeim myndum sem ég var búin að koma inn á læsta svæðið inn á opna svæðið. Svo er bara næst á dagskrá að verða sér úti um svona eitt stykki digital myndavél þannig að ég þurfi ekki alltaf að vera að ræna myndum af öðrum, vona að mér sé fyrirgefið!
|

